Heilbrigðismál - 01.01.1970, Síða 15
EITTHVAÐ NYTT
í LOK síðastlið ns septembermánaðar kom nýtt og
æsandi umhugsunarefni til skjalanna, eftir fund,
tem k abbameinssérfræðingar liéldu í Cherry Hill,
New Jersey. Sagt var frá mörgu nýju, sem komið
hafði í ljós um þátt veirunnar í hvítblæði ýmissa
dýra cg viss atriði virtust auka grun:nn um tengsl
hennar við manna-hvítblæði. Rússneskir vísinda-
menn sögðust hafa fundið sjúkdóm í nokkrum
kvenöpum, sem hefðu verið sprautaðir með blóði
f;á mönnum með hvítblæði.
Boris Lapin læknir, sem flutti skýrsluna, gaf í
skyn, að hann væri undrandi á niðurstöðunum. Þeir
höfðu sprautað dýrin þegar þau voru þunguð í von
um, að sjúkdómurinn kynni að koma fram á af-
kvæmunum. Eftir að ungarnir fæddust, voru mæð-
urnar settar í stóra klefa með öðrum öpum, en ung-
arn'r voru hafðir annarsstaðar til sérstakra rann-
sókna. Það var sama sagan og áður. Dýrin fengu
ekki hvítblæði. Hið óvænta gerðist hálfu öðru ári
seinna, þegar sum fullorðnu kvendýranna fengu
einkenni banvæns sjúkdóms. Jafnvel enn óvæntara
gengara en að þeir séu geymdir úti í öllum veðrum,
gegnblautir tímum saman og eru stundum orðnir
svo grautfúnir, að þeir halda tæpast nöglum, en þó
notaðir, jafnvel til að fara í mikla hæð og flytja
með sér þunga hluti. Slíkt er að bjóða hættunum
heim og ögra forsjóninni. Vitanlega þyrftu slysa-
varn'rnar að gera allt, sem í þeirra valdi stendur,
til þess að fræða fólk og vara við þessum háska,
er jafnan ógnar fjölda mann~, oft vegna óheyrilegs
trassaskapar og kæruleysis.
Bj. Bj.
og ef til vill enn merkilegra var, að sum hinna
kvendýranna, sem ekki höfðu verið sprautuð, fengu
sama sjúkdóminn. Hin rökrétta skýring virtist vera
sú, að blóðið frá krabbameinssjúklingunum hefði
verið mengað af krabbameinsveirum, sem svo or-
sökuðu hvítblíeði í dýrunum, er blóðinu var spraut-
að í, og að veirurnar hefðu smitað hin dýrin. Sá
möguleiki, að hvítblæð frumur hjá mönnum hefðu
myndað sjúkdóminn með því að vaxa eða breiðast
út í öpunum var útilokað með rannsóknum. Enda
eru blóðfrumur manna svo frábrugðnar apablóð-
frumum, að þær geta ekki vaxið eða haldizt við í
öpum.
Ekki var sá möguleiki talinn óhugsandi, að dýrin
sem fengu sjúkdóminn er líktist hvítblæði, hefðu
smitazt af einhverri óþekktri veiru, sem orsakaði
apahvítblæði og því ekki borizt með hinu sjúka
mannsblóði.
Lapin læknir, við tilraunameinafræðistöð rúss-
nesku vísindastofnunarinnar, er í miklu áliti hjá
amerískum vísindamönnum á sama sviði. Það er
því ekki hægt annað en taka skýrslu hans alvarlega,
sérstaklega vegna þess, að rússneski vísindamaður-
inn og starfsbræður hans fullyrtu, að þeir hefðu
fundið veiruagnir, em virtust eins og hinar svo-
kölluðu C-agnir, sem mestur grunur fellur á í sam-
bandi við rannsókn á krabbameini í mönnum. Það
hefur áður verið skýrt frá blóðbreytingum í dýrum,
sem hvítblæðiblóði úr mönnum hefur verið sprautað
í, en vísíndamenn í Bandaríkjunum halda því fram,
að þær skýrslur hafi engan veginn verið sannfær-
andi. Rússneski vitnisburðurinn er heldur ekki nein
úrslitasönnun, en hann ýtti samstundis undir amer-
íska vísindamenn að gera víðtækar tilraunir á þessu
sviði, og leitast við að komast að öruggum niður-
stöðum. Bramhald á bls. 22
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL
13