Heilbrigðismál - 01.04.1970, Qupperneq 4
legkrabbameinsrannsóknum. Allar konur
ættu jafnframt að kanna brjóst sín sjálfar,
samkvæmt leiðbeiningum er Krabbameinsfé-
lagið lét gefa út og dreifa, „Sjálfskönnun
brjóstanna”. Bjarni Bjarnason lét þess getið,
að konur fyndu sjálfar 98% allra krabba-
meina í brjóstum - lang oftast af tilviljun.
Reglubundin sjálfskönnun einu sinni í mán-
uði, er bezta aðferðin, sem enn þekkist í bar-
áttunni gegn brjóstkrabba. Þær konur, sem
óska, geta svo átt greiðan aðgang að leitarstöð
B, ef þær finna eitthvað athugavert.
Samvinna við Hjartavernd
Farið hefur verið fram á samvinnu við
Hjartavernd, en þar hafa verið teknar lungna-
myndir af allmiklum fjölda fólks og skráðar
reykingavenjur þess. Athugaðir hafa verið
möguleikar á því að fá skýrslur um þeta fóllc
og velja út þá, sem reykja meira en 1 pk. á dag
og reykt hafa lengur en 10 ár. Fyrirhugað er
að bjóða þessu fólki að koma til skoðunar og
gera frumurannsóknir á uppgangi frá því.
Norrœn samvinna
Nordisk Cancerunion. Samband krabba-
meinsfélaga á Norðurlöndum hélt sinn árlega
fund í Stokkhólmi á sl. ári, með formönnum
og riturum félaganna. Auk þess þinguðu for-
menn krabbameinsskráninganna á Norður-
löndum um sama leyti, og einnig var haldinn
sameiginlegur fundur þessara aðila.
Frá fslands hálfu var bent á það, að mann-
fæsta landið í sambandinu yrði að bera
þyngstar byrðar hvað ferðakostnað snerti. Eft-
ir að mál þetta hafði verið reifað, var sam-
þykkt tillaga formanns Krabbameinsfélags ís-
lands, þess efnis, að stofnaður yrði sameigin-
legur ferðasjóður allra Krabbameinsfélaganna
á Norðurlöndum, og að hvert land greiddi
honum tillag í hlutfalli við íbúatölu. Ferða-
kostnaður verður því lítill eða nánast enginn
fyrir Krabbameinsfélag fslands í sambandi við
Nordisk Canserunion.
Kobalttœkið
Kobalt-tækið, sem drepið hefur verið á í
ársskýrslum félagsins nokkur undanfarin ár,
er farsællega komið í höfn. Tækið kom til
landsins í nóv. sl. og þá var bygging við Land-
spítalann það vel á veg komin, að hægt var
að veita því móttöku. Tækið er nú komið í
notkun.
Þakkaði formaður öllum aðilum, er þarna
áttu hlut að máli. Bað hann Helga Elíasson
fræðslum.stj. að flytja Oddfellowreglunni
kærar þakkir fyrir þeirra myndarlega framlag,
en þeir söfnuðu fé til kaupa á tækinu eins og
það kostaði út úr verksmiðjunni. Eimskipafé-
lag fslands gaf farmgjöldin og Sjóvátrygg-
ingafélag íslands gaf tryggingar á tækinu frá
Kanada. Ríkisstjórnin felldi niður tolla af því.
Hans R. Þórðarson og Ólafur Jónsson for-
stjórar Electric, gáfu umboðslaun sín, en Hans
annaðist öll bréfaviðskipti og aðra fyrir-
greiðslu í sambandi við tækjakaupin. Annan
kostnað greiddu krabbameinsfélögin sameig-
inlega.
Skýrsla formanns var mjög efnismikil, en
sökum plássleysis verður ekki hægt að rekja
hana nánar hér.
Reikningar félagsins
Hjörtur Hjartarson forstj. stjórnargjaldkeri
félagsins, las upp endurskoðaða reikninga fyr-
ir árið 1969- Voru þeir samþykktir athuga-
semdalaust.
Bjarni Bjarnason læknir var einróma end-
urkosinn formaður félagsins, einnig þeir, er
áttu að ganga úr stjórn og varastjórn.
FRÉTTABRÉF UM HEI LBRIGÐI SMÁL
4