Heilbrigðismál - 01.07.1970, Page 7
Hœttulegust allra
matareitrana
Tíu manna fjölskylda á Hvítsöndum fékk
hættulegustu matareitrun sem um getur fyrir
einu misseri. Einn dó en hinir björguðust með
naumindum fyrir nýtízku læknisaðgerðir.
Blöðin ræddu málið af lifandi áhuga; það
var hátt á baugi og víða mátti lesa ágætar
lýsingar á skæðasta matvælaeitri veraldar, og
í hvaða fæðutegundum væri mest hætta á að
það myndaðist. En hverjir muna nú eftir
þessu lengur? Hversu margir hafa klippt
beztu greinarnar úr blöðunum til þess að
geta rifjað upp hina mikilvægu vitneskju,
sem þeir, er veita fyrstu hjálp, ættu sérstak-
lega að hafa tiltæka. Hér birtist nú grein eftir
Erik Munster lækni, sem kom fyrst út árið
1967.
Hættulegasta matareitrun veraldarinnar
heitir á læknamáli „botulismus ', og botulins
sýkillinn myndar eitrið (botulus er latína og
þýðir pylsa). Það eru til 5 tegundir botulinus
sýkla, en aðeins tegundirnar A, B og E mynda
eitur, sem er hættulegt mönnum. Sýkillinn er
staflaga og skyldur ginklofa- eða stífkrampa-
sýklinum. Hann finnst víða í jörð eins og
hinn, sérstaklega þar sem húsdýraáburður
hefur verið borinn á. Hann kemur einnig
Nú á dögum er hundaæði að verða algeng-
ur sjúkdómur á ný. Á meginlandinu er ekki
óalgengt að sjá hunda með það og það á sér
stað, að hellakönnuðir smitast af leðurblök-
um. Nú er það rætt hvaða ráðstafanir sé hægt
að gera til að hindra sams konar útbreiðslu
smitsins og átti sér stað á síðustu öld, og al-
menn bólusetning er aftur til umræðu.
Þá leitar hugurinn á ný til hlédrægs vís-
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
fyrir í þörmum manna og dýra, en veldur þar
að jafnaði ekki sjúkdómi, þó einkennilegt
megi virðast. Sýklarnir mynda aðeins hættu-
legt eitur þar sem súrefnisskortur er.
Hvar má búast við eitrinn?
Það myndast t. d. í niðursoðnu grænmeti,
ávöxtum, fiski og kjöti. Þegar búnar eru til
niðursuðuvörur eru matvælin hituð mikið.
Við það hverfur súrefnið úr niðursuðuílátinu
og hinn hái hiti drepur venjulega botulinus
sýklana, sem kunna að leynast í matnum. Og
sporarnir, sem sumir sýklar mynda, þegar
lífsskilyrðin eru óhagstæð, drepast einnig
venjulega, en annars hafa þeir mjög mikið
mótstöðuafl. Venjulega þarf meiri hita til að
tortíma þeim örugglega en hægt er að ná í
heimahúsum. Lifi þeir suðuna af, vakna þeir
til nýs lífs um leið og hitinn fellur. Þeir verða
þá að eðlilegum sýklum, sem æxlast mjög
ört og mynda botulinuseitur í ríkum mæli.
Hið harðlokaða og loftþétta ílát er súrefnis-
tæmt og því eru þar valin skilyrði til eitur-
myndunar.
indamanns, Louis Pasteur, sem lagði nótt við
dag í lítilli rannsóknarstofu í Ulm-götunni.
Ævistarf hans stendur okkur jafn lifandi fyrir
hugskotssjónum og nokkru sinni áður. Það á
jafnt við um hann sjálfan og stofnunina, sem
hann kom upp.
Pasteur-stofnunin lifir og hrærist í stór-
felldum viðfangsefnum, sem unnin eru í anda
hans. Bj. Bj. þýddi.
1