Heilbrigðismál - 01.09.1970, Síða 21
ingu. Þetta verður oft að gera til þess að
sjúklingurinn geti sofið. Sé hlýtt í svefnher-
berginu, 18-20 stig C., þannig að hægt sé að
vera lítið eða sem minnst klæddur, auðveld-
ar það öndunina og dregur úr hóstanum. Her-
bergið má ekki vera of heitt, þá ofhitnar
sjúklingurinn. Loftið má heldur ekki vera of
þurrt, þá ertir það öndunarfærin. Til þess að
halda loftinu hæfilega röku, er gott að hafa
skál með vatni á rafmagnsplötu með lágum
straum. Herbergið á að vera jafn heitt, bæði
nótt og dag. Gætið þess að hvorki rafmagns-
ofn né neitt annað sé í gangvegi svefndrukk-
ins og hálfruglaðs sjúklings ef hann kann að
fara fram á baðherbergi að nóttu til.
Þar sem inflúenza berst frá manni til
manns með úðasmitun - hósta og hnerrum -
á svefnherbergið að vera vel loftræst. Lítill
efri gluggi má vera opinn svo framarlega sem
hvorki myndast dragsúgur né herbergið kóln-
ar um of. Forðist ofhituð loftlaus herbergi.
Olíuofnar eru óheppilegir til upphitunar í
sjúkraherbergi. Þeir eyða súrefninu í andrúms-
loftinu og menga það með ertandi gufum.
Hins vegar er sök sér að nota þá til varahit-
unar annars staðar í húsinu.
Þreyta og þunglyndi.
Þreyta og þunglyndi leita á langflesta eft-
ir inflúenzu eins og aðrar meiriháttar veiru-
smitanir. Með algerri hvíld, rúmlegu þangað
til hitinn er horfinn og góðri hjúkrun, verður
minna úr eftirköstunum. Það hressir sjúkling-
inn að fá oft skipt um lök, ver, nærboli, nátt-
föt, sem eru rök af svita. Krumpuð rúmföt
á að slétta og laga koddana fyrir nóttina, því
sjúklingurinn sefur betur í vel umbúnu rúmi.
Birtan í herberginu á ekki að vera sterk og
þess skal gætt að hún skíni ekki í augu sjúk-
lingsins. Allt skal gert til að forða sjúklingn-
um frá áhyggjum, hávaða, heimsóknum og
vandamálum í sambandi við heimilisstörf og
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
alla aðra vinnu. Hann á helzt að vera í róleg-
asta herbergi hússins og bezt er að vera í eins
manns rúmi meðan á sjúkdómnum stendur.
Inflúenza er bráðsmitandi sjúkdómur og því
á að einangra inflúenzusjúklinginn og forð-
ast allt samneyti hans við aðra í fjölskyldunni
og velviljaða ættingja, eftir því sem tök eru
á. Það dregur úr útbreiðslu sjúkdómsins. Þeir
sem fá hann mega ekki undir neinum kring-
umstæðum fara út fyrr en hitinn er orðinn
eðlilegur og líðanin sæmileg, sem er venju-
lega eftir 5-7 daga frá byrjun sjúkdómsins.
Börn og aldrað fólk er að vísu stundum leng-
ur að jafn sig, en lang flestir eru orðnir nokk-
urn veginn góðir eftir 10 daga og hafa þá
sigrast á vetrarfjanda okkar, inflúenzunni.
Hvenœr á að leita læknis?
Eðlilegur og heilbrigður maður á auðveld-
lega að komast yfir inflúenzu án nokkurrar
læknishjálpar, en hættan felst í fylgikvillum
hennar. Haldist hár hiti lengur en 48 klst.,
án nokkurrar tilhneigingar til lækkunar eða
hækki hann aftur eftir 3. daginn, er ekki ólík-
legt að ný smitun hafi komið til skjalanna e.
t. v. lungnakvef eða lungnabólga. Aldraður
sjúklingur eða veill fyrir brjósti, á alltaf fylgi-
kvilla á hættu ef hann fær inflúenzu. Það
gildir sérstaklega um fólk með hjartasjúk-
dóma, þrálátt lungnakvef og asthma. Þegar
svo stendur á er rétt að leita læknis í tíma,
svo hann geti gert viðeigandi ráðstafanir.
Sjúklingur veill fyrir brjósti er oft með mik-
inn hósta og grænan eða gulan uppgang eftir
inflúenzu. Þetta krefst lækniseftirlits, sem
ekki má vanrækja. Inflúenzan er oft frekar
væg í smábörnum og líkist oft vondu kvefi.
Umönnun barns með inflúenzu hlýtir sömu
reglum og að ofan greinir.
Ur heilsufræðiriti Sheffield-borg-
ar, eftir Alexander D. G. Gunn.
Bj. Bj. þýddi
21