Samtíðin - 01.07.1935, Page 9

Samtíðin - 01.07.1935, Page 9
SAMTÍÐIN 7 ÖRN ARNARSON. I. Ég tel það mikið vafamál, að nokk- ur kvæði, sem birst hafa í íslensku tímariti á síðari árum, hafi vakið meiri né almennari athygli en Smá- lcvæði þau, er Eimreiðin flutti í 1.— 2. hefti árið 1920 eftir höfund, sem duldist undir gervinafninu Örn Arn- arson. Ekki er þetta sagt til þess að varpa rýrð á kvæði þau, er tímarit vor hafa birt eftir snillinga eins og Einar Benediktsson o. fl., en sá var munurinn, að þar áttu í hlut alkunn skáld, sem menn þektu og væntu sér mikils af. Hér átti hins vegar hlut að máli „nýr maður“, sem sárfáir vissu nokkur deili á og var hjúpað- ur dulnefni í þokkabót. Slíkt er að vísu nægilegt til þess að vekja for- vitni. En hitt bar þó af, að örn þessi átti sér nýjan tón, sem íslendingar þektu lítt nema af lestri erlendra kvæða. Mér hefir verið sagt eftir prófessor Magnúsi Jónssyni, er þá var ritstjóri Eimreiðarinnar og á því heiðurinn af því að hafa kynt kveð- skap Arnar alþýðu manna á landi hér, að hann hafi orðið bæði hrifinn og undrandi, er hann las eitt af áður nefndum smákvæðum hins nýja skálds. Það kvæði eru þrjú erindi. Við lestur 1. er. á M. J. að hafa hugs- að með sjálfum sér: „Nú, hér er þá líklega nýtt ástaskáld á ferðinni“. Er hann hafði lesið 2. er., fanst honum, að skáldið mundi þó einkum vera at- hyglisvert vegna kímnigáfu þess. En að loknum lestri kvæðisins hugsaði M. J. sem svo, að hér væri risinn upp hvorki meira né minna en íslenskur Heine. Við þetta álit Magnúsar Jónssonar á kveðskap Arnar Arnarsonar mun mega una. Kvæði hans eru hvert um sig eins og haglega gerðir gripir, sem hverfast á ási, þar sem hver vísa táknar nýjan flöt með mynd, sem er ólík hinum myndunum. Og þegar les- andinn hefir skoðað siðasta flötinn á listaverkinu, brosir hann þannig með sjálfum sér, að honum hlýnar innvortis, og hann les kvæðið ósjálf- rátt á nýjan leik, til þess að ganga úr skugga um, að honum hafi ekki sést yfir neitt, að ekkert hafi tapast. Við lestur slíkra kvæða flýgur oss í hug vísa Þorsteins: Það er líkt og ylur í ómi sumra braga, mér hefur hlýnað mest á því marga kalda daga. Örn Arnarson byggir kvæði sín á listrænan hátt. Hann hefir lag á því að hleypa í þau stíganda líkt og tíðk- ast í leikritum, en hjá Erni nær stíg- andinn hámarki sínu við lok kvæðis- ins, án þess að nokkur hvellur heyr- ist. Þannig segir skáldið um ekkjuna, ríku og fögru, sem var ólík öllum öðrum konum í ólgandi dansiðunni og hafði húmdökt hár og mjallhvítar

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.