Samtíðin - 01.07.1935, Page 13

Samtíðin - 01.07.1935, Page 13
SAMTIÐIN 11 UM RITDÓMA. EFTIR FREDRIK BÖÖK. Predrik Böök, prófessor við háskólann í Lundi, er einn lærð- asti bókmentafræðingur Svía, aðalhöfundur hinnar miklu almennu bókmentasögu, sem nú er nýskeð komin öll út i Svíþjóð. En Böök er einnig- mjög glöggskygn og frumlegur ritdómari, ef til vill sá fremsti þeirra, sem nú er uppi á Norðurlöndum. Auk rita bókmenta- sögulegs efnis liggja og eftir hann ýmsar skemtilegar ferðasögur og bækur um stjórnmálaástand Evrópu eftir Heimsstyrjöldina. Menn hafa oft — og það með réttu —ýmislegt út á ritdómendur að setja. Rithöfundarnir þekkja vanalegaprýð- isvel galla ritdómendanna. Dómur þeirra er oftast nær smásmuglegur og þröngsýnn, hálfvolgur í að meta öll hin mismunandi sérkenni hinna nýju rithöfunda. En hver sá, sem kynnir sér sögu bókmenta og ritdæmingu þeirra, mun samt sem áður brátt verða þess á- skynja, að flestir ritdómendur drýgja stærri syndir, með því að lofa, en með því að lasta. Það, sem alment má finna flestum þeirra til foráttu, eru ekki ómerkingardómar þeirra, ekki lítilsvirðing sú, sem þeir sýndu smá- ritsnillingum samtíðar sinnar, — því heiminum er þannig varið, að þar eru jafnan gnægðir svikinnar gyllingar og krábulls, en ávalt skortur þess, sem ósvikið er og verðmætt, — heldur þrekleysi það og dómgreindarskortur, er þeir sýna í því, að láta ómerk- inga og skrumara ganga sér í augu, og sú hóflausa mælgi, sem þeir verja til þess að veita einlæga eða yfir- skyns-athygli þeirri andlegu fram- leiðslu, sem í augum eftirtímans er augljóslega innantóm og einskisvirði. Það, sem gerir ritdóma Leopolds1 skoplega, er ekki hæðnin, sem hann hellir yfir Atterbom,2 hún verður að miklu leyti rökstudd, heldur það til- tæki hans, að kalla hinn lata og ó- frjóva Sjöberg,3 (N. L. Sjöberg, fyrir hvern mun ekki Vitalis) afburða- snilling. Það, sem fellir Wirsén4 svo, að hann á sér ekki viðreisnarvon, eru ekki ofsafengar árásir hans á Strind- berg3 og Heidenstam,6 aðeins barna- legir og sögulega ómentaðir flokka- dráttarmenn geta orðið dauðlega móðgaðir yfir þeim — það eru hóls- yrði hans um djáknann í Leksand 7 og ýms önnur skáld álíka að kostum bú- in. Það, sem þegar fram í sækir, ger- ir hinum hygna og viðkvæma Sainte- Beuve 8 ama, er ekki hin bitra og æru- meiðandi aðfinsla við volgrulegutildri Lamartines,9 (sá dómur er og verður rjettlátur) og ekki heldur, þrátt fyr- ir alt, hve naumur hann er á að hrósa Stendahl10 og Balzac 11 (.því álitamál er, hvort hann hafi þar ekki rétt fyr- ir sér) .En það, sem varpar á hann verulegum skugga, eru allmargar, mjög svo lotningarfullar greinar, sem

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.