Samtíðin - 01.07.1935, Qupperneq 17

Samtíðin - 01.07.1935, Qupperneq 17
SAMTÍÐIN 15 JÓN KRISTJÁNSSON: HEIMSENDIR. (Niðurlag.) Það var sunnudagur. Veðrið var fagurt. Þungar undiröldur bærðu hægt hafflötinn. Oft hafði um þetta leyti verið hafinn undirbúningur til að nota slíka sælygnu. — En nú var ró yfir öllu slíku athafnalífi. Kirkjuklukkurnar hringdu. Menn streymdu frá kirkjunni. Grímur frá Naustabæ hallaði sér upp að litla skúrnum sínum, sem stóð rétt við götuna. Hann tottaði pípu sína og horfði alvarlegur til þreytulegs safnaðarins. Þarna kom Fúsi gamli í Bygðar- holti. Sá skyldi fá orð í eyru! hugs- aði Grímur. „Komdu sæll, Fúsi minn. Hvaðan ber þig að?“ Fúsi leit upp og kendi þungrar al- vöru í rómnum, er hann svaraði: „Komdu sæll, Grímur. Ég kem úr guðshúsinu". „Hvað varst þú að gera þar? Ef fthg minnir rétt, þá hefir þú ekki hingað til slitið skóm þínum á kirkjur &öngum“. „Ég var að hlusta á guðs orð. Nei, satt er það, að ég hefi lítið gætt and- iegrar velferðar minnar hingað til“. >»Og þú vai'st að hlusta á guðs orð, sem presturinn talaði til þín! Þú ert víst að verða skelkaður við halann á þessum vígahnetti, eins og aðrir?“ „Þú veist ekki, hvað þú segir, Grímur“, sagði Fúsi alvarlega. „En sá tími nálgast nú hröðum skrefum, er þú færð að standa reikningsskap orða þinna og gerða“. „Ég ætti nú að vera þér þakklátur fyrir þessa aðvörun þína. En svipað þessu hefir þú víst heyrt út ganga frá prestinum". „Já“. „Það var svo sem auðvitað, að þú yrðir að láta aðra hugsa fyrir þig. — En heyrðu mig nú, Fúsi minn“, sagði Grímur alvarlega og tók út úr sér pípuna, „hefir þú altaf búist við því að verða eilífur hér á jörðunni?" „Nei, ég hefi haft þú skoðun á því, eins og aðrir, að eitt sinn skyldi hver deyja“. „Og finst þér dauðinn nær þér nú en endranær?" „Nei, en nú hefi ég verið aðvarað- ur“. „Það veitti víst ekki af. En frá því þú fæddist, hefir dauðinn vofað yfir þér. Hann hefir fylgt hverju fótmáli þínu. Hann hefði getað ráðist á þig, hvenær sem var og kreist úr þér líf- tóruna. En það er víst, að dauðinn er alls ekki nær þér nú en endranær“. „Nei, það má vel vera. En eins og ég sagði áðan, þá hefi ég verið sof-

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.