Samtíðin - 01.07.1935, Page 18

Samtíðin - 01.07.1935, Page 18
16 SAMTÍÐIN andi og nær því varast aS hugsa um andlega velferð mína. En nú hefi ég verið vakinn“. „Já, og það, í hæsta máta, nokkuð hrottalega! Það veitti víst ekki af því!“ „En þú, Grímur, sefur enn þá í syndum þínum“. „Já, það geri ég líka framvegis. Ég ætla að lifa, eins og ég hefi áður lif- að. Ég er eins og þið. Ég veit ekki, hvað er synd eða hvað er rétt eða rangt“. „Það veit ég, að þú hefir enga hug- mynd um, og þú gerir ekkert til að reyna til að opna augu þín“. „Ég hefi sennilega lítið minna hugsað um dauðann, dómsdag og ann- að líf en þið. Og ég ætla alls ekki að breyta til og komast í sömu vandræði og þið hafið nú skapað ykkur. Ger þú það, sem rétt er. Ég ræð það af fyrirlitningar- og reiðisvipnum, sem á þér er, að þú þykist vita, hvað rétt er. Ég hefi ekki meira við þig að tala. Vertu sæll!“ Grímur stakk pípunni í munninn og horfði út á hafið. Fúsi ansaði ekki kveðju hans, en gekk burt og hristi höfuðið. „Voruð þið líka að búa ykkur und- ir eilífðina? Ég hélt nú, Helgi minn, að þér hefði ekki veitt af því fyr. Það er nú annað með Gróu, sem altaf hef- ir verið talin með þeim útvöldu“, sagði Grímur gletnislega við mið- aldra hjón, sem gengu framhjá. Þau svöruðu ekki, en litu með fyrirlitn- ingu til Gríms. „Ég sé nú ekki annað en þið heldur versnið; ekki eykst bróðurkærleikurinn, að minsta kosti“, sagði Grímur og sendi þeim tóninn. Þau gáfu orðum hans engan gaum. Hannvar sokkinnof djúpt í syndafen- ið, til þess að vert væri að tala við hann! Presturinn hafði sagt, að synd- arinn væri eins og skemda eplið; hann gæti sýkt út frá sér. — „Ég er nú svo sem aldeilis hissa“, tautaði Grímur og gekk inn í skúr sinn. Hann gekk hægt að farviðun- um úr árabátnum sínum. Iiann at- hugaði veiðarfærin og fiskinn, sem hékk þar uppi til herðings. Á meðan hann fór höndum um þessar eignir sínar, tautaði hann: „Það er eins og fólkið hafi verið svo skyni skroppið, að það hafi ekki vitað, að því var gef- inn dauðinn í fæðingunni. — Skyldi maður þá ekki framar leggja út þessa spaða? — Kaupmaðurinn lækkar vöruverð sitt. — Skyldi ekki fram- ar fá að blása í þessar segltuskur? — Hreppstjórinn gefur Kalla, veslingn- um, dóttur sína, og oddvitinn er hætt- ur að krefja um útsvörin. — Ætli þessir uggar fari ekki að verða æt- ir? — Hvar skyldi þetta lenda? Sum- ir eru orðnir svo vitlausir, að þeir virðast helst ætla að myrða sig. Sum- ir strákarnir drekka sig fulla, dag eftir dag, og lifa eins og slarkarar“. Hann gekk út og lokaði hægt dyrun- um, setti hespuna upp á kenginn, setti lás fyrir og læsti, en stakk því næst lyklinum í vasann. Hann sneri sér til hafsins og horfði löngunarfullum augum yfir spegilsléttan flötinn. —- „Presturinn og aðrir telja skilnað okkar Gerðu stórsynd og segja, að barnið hennar Jórunnar, greysins, sé getið í synd. Hver er ekki getinn í synd? — Það gengur guðlasti næst að vinna nokkra líkamlega vinnu! —- Jæja, það er víst best að vita, hvort

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.