Samtíðin - 01.07.1935, Qupperneq 23

Samtíðin - 01.07.1935, Qupperneq 23
SAMTÍÐIN 21 an veginn sagt, að þar skorti á við- kvæmni og jafnvel trega, eins og kemur fram í sumum af eftirmælum Bjarna og víðar í kvæðum hans. Karlmenska hans birtist oss glögt í hergönguljóðinu: Sortanum birta bregður frí, sem er ágætt kvæði og einnig í kvæði, sem nefnist Herhvöt; það hefst á þessa leið: Skalat halur hræðast dauða helgan fyrir föðurláð, afla geði ei skal nauða, að aldri gamals fær ei náð. Halur lifað hefir nóg hver, sá föðurlandi dó; minning hans hjá mönnum lifir, þá mold er komin bein hans yfir. Þetta erindi sýnir oss brot af lífs- skoðun skáldsins, en karlmenskan leiftrar af erindi eins og þessu: Frægur er sá fremstur gengur feigðar út í élin hörð, og þá vinst ei lifið lengur, litar blóði græna jörð. En sá huglaus undan snýr ógn sér dauða þyngri býr, aldraðir munu’ að honum glotta, ungbörn hann og konur spotta. Það, sem mér finst að þessu kvæði, er hátturinn. Hann er að mínu áliti of sálmkendur á kvæði um þetta efni, með þessu nafni og ortu af Bjarna Thorarensen. Af öðrum kvæðum hans, er bera vott um manndóm, má nefna: Island (Þú nafnkunna landið, sem lífið oss veitir) og kvæði, sem nefnist: Tilskipun 11. mars 1633. Meðal kvæða Bjarna Thorarensens ber mikið á erfikvæðum þeim, er hann orti eftir ýmsa merka menn. Sú tegund kveðskapar er nálega jafn- gömul íslenskri ljóðagerð. En Bjarni lyfti þessari kveðskapargrein á það stig, að enginn íslenskur maður hefir síðan gert betur. Erfikvæði hans eru yfirleitt sígildar bókmentir. Þau eru mótuð af vitsmunadýpt og miklum skilningi á mannlegu eðli. Bjarna má kalla föður erfikvæðanna í nútíma- bókmentum vorum, en þó má ekki saka hann um það, þó að erfiljóða- gerð vor kæmist síðar á slíkt akta- skriftarstig, að best er að tala sem minst um alt það tískuflóð. Eftirmæli Bjarna um Jón Jónsson, Sæmund Hólm, Rannveigu Filippus- dóttur, Guðrúnu Stephensen og Odd Hjaltalín eru hvert öðru meira snild- arverk. Annað yrkisefni Bjarna er ástin. Hann hefir ort ástarkvæði með þess- um hispurslausu fyrirsögnum: Kystu mig og Kystu mig aftur. En frægasta ástarkvæði hans er Sigrúnarljóð, enda er það kvæði að vissu leyti ein- stætt í íslenskum bókmentum. Það er ójarðneskt og mjög ólíkt flestum ást- arkvæðum nútímaskálda vorra. Það þarf meiri andagift og frumleik en ýmsa mun gruna til þess að yrkja svo óholdrænt kvæði. En ekki fer hjá því, að mönnum verði við lestur kvæð- isins hugsað til Völsungakviðu fornu, þar sem ort er um ástir og dauða, og annar elskandinn heitir Sigrún frá Sevafjöllum, þó að ekki verði hér að öðru leyti bent á líkingu milli kvæð- anna. 1 sumum af kvæðum Bjarna bregð- ur fyrir háði, og í ýmsum kvæðum hans er allmikill „humor“, eins og t. d. í þessum kvæðum: Um málaferli Sæmundar Hólms, Til Finns Magnús-

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.