Samtíðin - 01.07.1935, Qupperneq 29
SAMTÍÐIN
27
Til hollustu og þjóðþrifa.
Þriðja boðorð.
GRÆNMETI OG ÁVEXTIR.
(C-fjörefni).
Minnist þess, að eigi fæði að heita
verulega gott, eiga menn daglega að
neyta nýrrar, ósoðinnar fæðu. Það
er tönnunum holt, að máltíðum ljúki
með því, að menn neyti epla eða gul-
róta.
í hráa grænmetisrétti má fyrir ut-
an tómata, gúrkur, bleikjurtir) (kar-
se) og radísur nota rifin hrá epli, kál
eða gulrætur, sem hræra má hráum
eggjarauðum saman við. Úr rósberj-
um á að elda súpu eða sjóða mauk
eins og gert er í Svíþjóð, því að rós-
ber eru mjög auðug af C-fjörefni, og
eyðilegst það ekki við suðu eins og í
öðrum ávöxtum. Á haustin á að laga
eins mikið af hráum ávöxtum og
hægt er (raasylte) og geyma þá til
vetrarins.
C-fjörefni verndar menn gegnskyr-
bjúgi. Ef menn öðlast ekki nægilega
mikið af C-fjörefni, er hætt við, að
blæði úr tannholdinu og víðar. Ávext-
ir eru holl og hressandi fæða.
Fjórða boðorð.
SÓLSKIN OG LÝSI.
(D-fjörefni).
Sólargeislarnir og fjörefnin í lýsi
eru mjög þýðingarmikil, vegna þess
að þau stuðla að því, að verja oss fyr-
ir „ensku sýkinni“ og öðrum beina-
sjúkdómum, og stuðla einnig að lækn-
ingu sömu sjúkdóma.
Grænmeti er börnum einnig mjög
holl næring, vegna þess að það hefir
í sér fólgin steinefni og A, B og C-
fjörefni, en í því er ekkert D-fjörefni.
Nýmjólk, smjör, egg og fiskur hafa
auk A-fjörefnis einnig í sér D-fjör-
efni og eru því mjög mikilsverðar
fæðutegundir, en í lýsi eru þó miklu
meiri (meir en 100 sinnum meiri) A-
og D-fjörefni.
Því er það, að ef börnum fer ekki
vel fram, ráðleggja læknarnir, að
smábörnum sé gefin ein teskeið af
lýsi daglega og stærri börnum ein lít-
il matskeið af því þá mánuði ársins,
sem sólarlausastir eru, eða frá því í
október á haustin og fram í maí, en
þá er bæði mjólk og smjör fjörefna-
snauðara en á sumrin. Börnin eiga að
vera úti undir beru lofti bæði vetur
og sumar, helst frá því að þau eru
nokkurra vikna gömul, til þess að þau
njóti sólarinnar sem allra best.
Yfirleitt eiga mæður ekki að taka
börn af brjósti fyr en eftir 9 mánuði,
nema sérstakt læknisleyfi komi til.
Stærri börn eiga að vera í sólríku her-
bergi og leika sér úti. Og að vetrar-
lagi þarfnast þau oft lýsis engu síð-
ur en smábörnin.
Gamalt máltæki segir: Þar sem
sólin kemur inn, fer læknirinn út.
Farið snemma að hátta. Farið á
fætur með rísandi sól. Liggið í sól-
böðum, þar til þið eruð orðin dökk á
hörund.