Samtíðin - 01.07.1935, Síða 31
SAMTÍÐIN
29
Um stafsetningu á forn-
sögum.
Framhald af bls. 26.
nú er ger sagt á þessari en á þeirri.
En hvað sem er missagt í fræðum
þessum, þá er skylt að hafa það held-
ur er sannara reynist.
(Eðlilegur nútímaritháttur.)
Ekki er ólíklegt að því yrði haldið
fram, að væru fornsögurnar útgefn-
ar með lifandi stafsetningu í stað
hins mentafjandsamlega ritháttar
málfræðishetjanna, væri of mikið
djúp staðfest milli hins bundna máls,
sem víða kemur fyrir í textunum, og
hins óbundna. Því er í fyrsta lagi þar
til að svara, að vísurnar stinga jafn-
mikið í stúf við hinn óbundna texta
samræmdu stafsetningarinnar, eins
og þær mundu gera við nútímastaf-
setningu. Vísurnar hljóta ævinlega að
stinga í stúf við textann, og er orsök-
in sú, að þær eru annað listform en
hinn óbundni stíll, þær eru orða-
skrautlist, sem hlíta öðrum reglum
og eldri stílmenningu en hið ritaða
mál, ólíkri tegund málmenningar. Það
er ef til vill glöggvandi að líkja
þeim við höfðaletur, þar sem útflúr-
ið er aðalatriði, en ekki innihald orð-
anna. Mikill hluti hins bundna máls
innan um í sögunum getur aldrei orð-
ið öðrum en sérfróðum mönnum til
ánægju. Þó eru til fornar vísur, sem
ekki eru ortar í hinu útflúraða
bundna formi, eins og t. d. Það mælti
ftnn móðir, jafnvel Höfuðlausn og
margt í Eddu.
Leggið
leið yðar um Hafnar-
stræti í verslunina
Edinborg. Þar er mest
og best úrval af vefn-
aðarvöru, glervöru og
busáhöldum.
Verslunin
Edinborg
Hafnarstræti 10. Reykjavik
KIRKJURITIÐ
er tímarit, sem á erindi til allra
þeirra lesenda, sem áhuga hafa
fyrir andlegum málum. Það er
gefið út af Prestafélagi íslands,
og ritstjórar eru Sigurður P.
Sívertsen og Ásmundur Guð-
mundsson.
í síðasta hefti birtist ítarleg frásögn
um f jölmennasta kirkjufund, sem hald-
inn hefir verið á íslandi.
Ritið kemur út 10 sinnum á ári,
er um 27 arkir að stærð og kostar
aðeins kr. 4.00 árgangurinn.
Gerist áskrifendur og pantið rit-
ið hjá síra Helga Hjálmarssyni,
Hringbraut 144, Reykjavík.