Samtíðin - 01.07.1935, Side 32

Samtíðin - 01.07.1935, Side 32
30 SAMTÍÐIN MERKILEGT RITSAFN. Þorsteinn M. Jónsson, bókaútgef- andi á Akureyri, hefir nýlega sent frá sér 1. bindi af merkilegu ritsafni, en það eru: Islenskar þjóösögur, sem Ólafur Davíðsson hefir safnað. Þetta 1. bindi er 24 arkir að stærð, og hafa þeir, Jónas Rafnar yfirlæknir og út- gefandi sjálfur, séð um útgáfuna. I formála fyrir þessu bindi þjóðsagn- anna kemst Þ. M. J. þannig að orði: „Svo sem kunnugt er safnaði Ólaf- ur Davíðsson cand. phil. að Hofi í Hörgárdal fjölda þjóðsagna víðsveg- ar af landi hér. Af hinu mikla og merkilega safni hans hefir tiltölu- lega lítið verið prentað enn þá. Þó var nokkuð prentað í Huld, og 1895 voru prentaðar í Reykjavík íslenskar þjóðsögur, sem hann hafði safnað. Þeirri bók var svo vel tekið, að hún var gefin út í annari útgáfu 1899, og er sú útgáfa einnig fyrir löngu upp- seld. Síðan Ólafur dó, árið 1903, hef- ir safn hans legið óprentað. Er það í eigu frú Huldu Stefánsdóttur á Þingeyrum, en hún hefir góðfúslega boðið mér að gefa það út, og birtist hér fyrsta bindi þess. Vona ég, að þjóðin taki safni þessu jafnvel og því sýnishorni, sem út kom fyrir 40 ár- Hið íslenska Fornrifafélag. Út er komið: EYRBYGGJA SAGA. Brands þáttr örva. Eiríks saga rauða. Grænlendinga saga. Grænlendinga þáttr. — Einar Ól. Sveinsson og Matthías Þórðarson gáfu út. IV. bindi Fornrita. 96 + 332 bls. Með 6 myndum og 6 kortum. Verð heft kr. 9.00, í ljerefts- og pappabandi 10.00, í skinnbandi 15.00. Áður komu út: Egils saga Skalla-Grímssonar, II. bindi Laxdæla saga., Stúfs þáttr, V. bindi. — Við sama verði. — Fást hjá bóksölum. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.