Samtíðin - 01.10.1936, Page 4
2
SAMTÍÐIN
Vé Qasrucdvi oc^ CxíbjjCúvCu J
Eiffinmaður (við konu sína, sem
er að koma neðan úr bæ): —
Ileijrðu, elskan mín. Hefurðu meiti
þiff? Af liverju ertu með þessar um-
búðir?
— Þetta er nýi hatturinn minn.
Hún: — Við ættum annars að
kaupa olckur nýjan bíl.
Hann: — Æ, nei, elskan mín,
ekki strax. Eg er enn ekki búinn
að borga alt andvirði bílsins, sem
e.g seldi fyrir bilinn, sem eg keypti
með afborgunum og seldi upp í bíl-
inn, sem við eigum núna.
Dómari nokkur i Ameríku misti
stöðu sína og gerðist bankagjald-
keri. Eitt sinn kom maður inn í
bankann og vildi fd peninga fyrir
dvísun, sem hann var með.
— Eg hefi engar sannanir fyrir
þvi, að þér séuð sd, sem þér þykist
vera, mælti gjaldkerinn.
Maðurinn dró upp bréf til sín og
allskonar plögg, en ekkert dugði.
Að lokum mælti hann:
— Þegar þér voruð dómari, vissi
eg til, að þér létuð hengja mann,
þó að sannanirnar væru veikari en
þær sannanir, sem hér er um að
ræða.
— Það má vel vera, ansaði gjald-
kerinn, — en þegar maður á að
borga út peninga, verður maður að
vera gætinn.
Það er ekki hægt annað að segja
en að neyíendahreyfingin hafi átt
erfilt nppdráttar hér í Reykjavík.
Nokkrum sinnum hafa risið upp
félög, sem þó hafa flest átt stutl-
an aldur og orðið að hætta störf-
um, ýmist vegna óreglu í rekstri
eða af öðrum misfellum á starf-
semi þeirra. — Öllum neytend-
um er samt sem áður Ijós nauð-
syn þess, að komið sé hér upp öfl-
ugu og sterku neytendafélagi, er
væri þess megnugt, að halda niðri
vöruverði og spara útgjöld heimil-
um og einstaklingum í hag.
Pöntunarfélag verkamanna, sem
hefir nú starfað í 2 ár, hefir þegar
lagt grundvöllinn að öflugri neyt-
endahreyfingu hér í bænum. í fé-
laginu eru nú um 1500 f jölskyldur,
og þó að sjóðir félagsins séu ekki
miklir enn sem komið er, þá er
það vel trygt fjárhagslega. Pöntun-
arfélagið hefir vaxið ákaflega ört.
Þó að starfstími þess sé ekki
lengri, hefir það liaft geysileg á-
hrif á vöruverð í bænum.
Grundvöllur að sterku og öflugu
neytendafélagi er þvi þegar lagð-
ur. Nú er það næsta verkefni að
styrkja félagið enn betur, svo það
geta orðið neytendum veruleg hjálp.
Þess vegna skorum vér á alla neyt-
endur, sem standa utan við Pönt-
unarfélagið, að gerast meðlimir
þess sem allra fyrst.
Allar upplýsingar í síma 2194.
Pöntiinarfélagverkamanna