Samtíðin - 01.05.1944, Síða 11
SAMTlÐIN
7
Svo þarf og þjót^in sjálf, lesend-
urnir, að biðja blaðamennina um
betri málflutning, leiðbeiningar og
fróðleik um málefnin, skýringar á
hugsjónum og stefnum, og jafnframt
gjarnan kappræður um málin, eld-
heitar, fjörugar og snjallar, þar sem
allri persónulegri áreitni væri sleppt
og blekkingum aldrei beitt. Þá yrðu
blöðin það, sem þau eiga að vera,
mikilsverð menningartæki, og það
stórveldi í landinu, sem skylt væri
að meta og virða vel.
Vinnið ötullega að útbreiðslu Samtíðar-
innar og hjálpið oss til að gera hana að
tímariti allra íslenzkra heimila.
TTIN MIKLA háreysti 20. aldar-
•*- innar, og þá einkum liin marg-
víslega sibylja allra hinna starfandi
útvarpsstöðva, hefur breytl mönn-
um úr virkum lilustendum í óvirka
heyrendur. Þessir áheyrendur, sem
áður voru hlustandi einstaldingar,
eru nú illu heilli, orðnir að hóp-
mennum, sem hleypa hinni sífelldu
hárejrsti inn um annað e>Tað og út
um hitt. Hvílík meðferð á hinni ó-
umræðilegu hlustunargáfu mann-
anna! Að kunna að hlusta er að vera
fær um að breyta þyt laufskógar-
ins, niði lækjarins og söng fuglanna
í algleymisfögnuð yfir dýrð sum-
arins. Hljóð margfaldast, ef við
kunnum að hlusta. Við eigum að
reyna til að læra að lilusta á allan
liinn dásamlega samhljóm, sem
berst að eyrum okkar úti í guðs-
grænni náttúrunni, en forðast að
láta allar hinar ægilegu stríðsfrétt-
ir, sem útvarpið flytur okkur sýknt
og heilagt, gera okkur að skynlaus-
um heyrendum.
JÖRGEN FRÁ HÚSUM:
o4 SlipistcL suwiQXcLaq.
Ó, fagra, góða Fljótsdalssveit,
hér fyrsta vorsins blóm ég leit,
ég ann þér ár og síð.
Þér Hengifossinn hrópar Ijóð,
sem heyrist vítt um bjarkaslóð.
Þér syngja fuglar sumarljóð,
er sólin gyllir hlíð.
Hér svellur áin, suðar lind,
og sólin roðar Snæfells-tind
í glæstum fjallageim.
Af vetrarblundi vaknar dátt
við vorsins milda hörpuslátt
hver ilmbjörk smá, hvert blómið blátt
nú bjóða vinum heim.
Hér æskan glöð með afl og þrótt
á ársins fyrstu sumarnótt
þér syngur sumarlag.
Er röðull fagur roðar grund,
upp rennur sumars morgunstund,
þá börnin þín svo blíð í lund
þér bjóða góðan dag.
Eftir nótum blæs mér byr.
björg er fljót að landi.
Sel, þótt ótal aðrar dyr
opnar móti standi.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
UM VÁTRYGGINGAR HJÁ:
Nordisk Brandforsikring A/S
Aðalumboð á íslandi Vesturgötu 7.
Reykjavík. Sími 3569. Póstbólf 1013.