Samtíðin - 01.05.1944, Qupperneq 23
SAMTlÐIN
19
forseti verður þjóðkjörinn. En það
er fölsun í þeirri merkingu, sem
lögð liefur verið i orðið þjóðkjör-
inn siðan um öndverða 19. öld og
lengur. Alþingi er nú eins þjóðkjör-
ið og talið er, að nokkur fulltrúa-
samkoma landsmanna geti orðið með
okkar þjóðskipulagi. — Klausan er
ekkert einsdæmi um gleymsku á
þvi, hvað þjóðkjör sé, — auk þess
sem sumum þykir fínt að vanda lítt
orðalag sitt gagnvart alþingi, eigi
sízt ef þeir hafa hoðið sig fram og
jafnvel komizt þangað, en eiga þar
ekki sæti.
Oft er rætt um að tefla á tæpasta
vað. Menn, sem leggja í vað á foss-
brún, eru ekki að tefla tafl, enda
getur það vað verið gott, og Þor-
steinn segir:
láttu ekki skelfa þig leiðsögu hans,
sem leggur á tæpasta vaðið.
Menn leggja á vað eða í ána. Menn
tylla á tæpustu nöf (fætinum), en
tefla þar ekki heldur. Ilitt er óskylt
orðalag, en rétt á sinn hátt, að menn
tefla á tvær hættur. Þá er taflmanni
teflt á þann reit á skákborði, að tvær
leiðir eru fvrir andstæðinginn að
drepa liann.
í þýddri blaðgrein segir, „að fáir
leSgja lengur trúnað á Ramavein
Þjóðverja um spjöll á ítölskum
klaustrum og jafnvel Rómaborg'
sjálfri. Sporin hræða.“ — Margir
leggja ekki trúnað á útburðarvein,
segja þau vera imyndun. Eru þá
vein þessi um spjöll af loftárásum
einnig imyndun? Fjarri fer því. ís-
lenzkan á þessari þýðingu hefur snú-
Gróður og sandfok
heitir nýjasta bók
Guðmundar G. Hagalíns
Það er alltaf viðburður, þegar
Guðmundur sendir frá sér nýja
bók. Þetla ritgerðasafn hans um
bókmenntir og menningarviðhorf
samlíðarinnar verður vafalaust
mikið lesin, rædd og umdeild bók.
Eignizt hana sem fyrst.
HELGAFELL, Aðalstræti.
V é 1 s m í ð i
E 1 d s m í ð i
Málmsteypa
S k i p a- o g
V élaviðgerðir