Samtíðin - 01.05.1946, Page 12
8
SAMTÍÐIN
haldið, að þar sé rúra fyrir blóin-
sveig. Það lítur helzt út fyrir, að
minnisvarðanum sé þarna með öllu
ofaukið. Yæri ekki tilhlýðilegt, að
hann væri fluttur og honum yrði
skipað öndvegi i fögrum garði við
nýja sjómannaskólann?
Fögur og athygliverð er hugmynd
síra Halldórs Jónssonar í Kirkju-
blaðinu nýlega. Hann talar um, að
foreldrar gróðursettu tré i kirkju-
garði eða i nánd við kirkju sína i
hvert sinn, er barn fæðist og ferm-
ingarbörn gróðursetji einnig tré lil
minningar um fermingu sína og
gættu þess svo lengi, sem þau ættu
heima í sveit sinni. Væri vel, ef
margir yrðu til þess að gefa þessari
ágætu liugsjón prestsins verulegan
gaum. Myndi þá, er tímar liðu, verða
öðruvisi umhorfs í mörgum kirkju-
garði og umhverfi kirkna yfirleitt.
Fólkið vrði knýtt kirkjunni sinni
nýjum tryggðaböndum, og kirkju-
garðarnir yrðu friðsælir rcitir,
prýddir trjám og öðrum fögrum
gróðri, nokkurs konar „óasar“ i
eyðimörkinni.
Reykjavik, 31. marz 1946.
J7PLI, sem féll til jarðar, varð til
þess, að þyngdarlögmálið var
uppgötvað.
)PUR ÁHRIFAMIKILLA stjórn
málamanna hafði eitt sinn safn-
azl kringum Lincoln Bandaríkjafor-
seta, og reyndu þeir nú með öllu
hugsanlegu móti að fá hann til að
veita vini þeirra sendiherrastöðu í
Suður-Ameriku. „En herra forseti,“
sögðu þeir að lokum, þegar ekkerl
dugði, „þér vitið, hve heilsulaus
hann er. Loftslagið í Suður-Ameríku
mundi áreiðanlega hafa mjög heilsu-
samleg áhrif á hann.“
„Ég skil það,“ anzaði Lincoln. Og
þvi næst bætti hann við, skellihlæj-
andi: „En mér hafa borizt umsóknir
um þetta starf frá átta öðrum mönn-
um, — og þeir eru allir miklu heilsu-
veilli en skjólstæðingur ykkar!“
MAÐUR NOKKUR kom til And-
rew Jaeksons Bandaríkjafor-
seta og vildi fá hann til að vikja em-
bættismanni nokkrum frá störfum
og veita sér síðan embætti hans.
„Haim hefur gegnt þessu embætti
árum saman,“ sagði maðurinn.
„Það sýnir' hara, að hann á allt
traust skilið,“ svaraði forsetinn.
,,En hann er vellauðugur og þarf
alls ekki á neinum launum að
halda,“ mælti umsækjandinn.
..Nú, fvrst svo er,“ mælti Jackson.
,,er alveg sjálfsagt, að hann haldi
cmbættinu, ])ví að þá er mildu siður
hætta á því, að hann sýni nokkurn
óheiðarleik í starfi sinu.“
Þeir, sem nota
sápuna
einu sinni —
nota hana aftur.
Nð
>,,,(’/
Upplýsingar góðar gef,
gagn er oft í slíku,
um suðutækin, scm ég hef
selt frá Ameríku.