Samtíðin - 01.05.1946, Page 16
12
SAMTÍÐIN
ist, því þrengri var'ð liringurinn, og
yfir liann dundu spurningar, álasan-
ir og storkunarorð, sem honum
þóknaðist ekki að svara einu orði.
Nú liöfðu nokkrir vegfarendur
tekið Ileredia fastan á; Háskólatoig-
inu, er þeir sáu liann þar á hlaup-
um, skömmu eftir að skotlivellur-
’inn heyrðist, þvi að þeir héldu, að
ef til vill væri hann óhótamaðurinn.
— Farið með mig til aðalher-
stöðvarinnar, sagði tatarinn. Ég
þarf að tala við greifann af Montijo.
— Hvaða Montijo-greifa eða livern
djöfulinn þarflu við að tala, sögðu
fangaverðir lians, vissir 1 sinni sök.
— Hér koma varalögreglumonnirn-
ir, og þeir munu kunna skil á því,
hváð við þig á að gera.
— Sama er mér, anzaði Heredia.
en þið verðið að sjá um, að Parrón
drepi mig ekki ....
— Parrón? .... Hvaða þvætting-
ur er þetla i manninum? ....
— Komið með mér, og þá skuluo
þið sjá.
Að svo mæltu lét tatarinn flytja
sig fram fyrir foringja varalögregl-
unnar, henti þá á Manúel og sagði:
— Herforingi, þetta er Parrón! og
ég er tatarinn, sem gaf greifanum
af Montijo lýsinguna af lionum fyr-
ir hálfum mánuði.
— Parrón!... . Parrón fangi! ....
Og það var varalögreglumaður! . .
. . æplu ótal raddir.
— Það er ekki um að viliast,
sagði fyrirliðinn, er hann hafði les-
ið yfir lýsingu þá, sem herstjórinn
hafði fengið honum. — En hvílildr
heimskingjar höfum við verið! Og
þó er ekki von, að neinum dytti
i hug að leita að foringja hófaflokks-
ins meðal lögreglumanna þeirra,
sem sendir voru til að liandsama
hann.
— Auli var ég, tautaði Parrón
samtímis þessu og renndi til Here-
dia augunum, sem glóðu eins og í
særðu Ijóni. — Og það er einasti
maðurinn, sém ég gaf líf! Já, vist
verðskulda ég það, sem nú híður
mín.
í vikunni þar á eflir var Parrón
Iiengdur. Og þannig rættist spá-
dómur tatarans orði til orðs....
Þórlxallur Þorglhson
þýddi.
Gamall leikari snéri sér íil kvik-
mijndaframleiðanda og bað hann
um hlutverk i næstu kvikmynd, sem
tekin yrði.
„Eruð þér vanur að leika án áhorf-
enda?“ spurði kvikmyndaframleið-
andinn.
„Já,“ stundi leikarinn, „og ]>ví er
ég mí hingað kominn."
Eiginmaður: „Þér þýðir ekki að
vera að þessu sífellda nöldri. Ég skal
aldrei hætta að brúka í nefið, fyrr
en ég gef upp öndina.“
Eiginkonan: „Hvað kemur til, að
þér dettur í hug, að þii munir hætta
því, þó þií drepist einhvern tíma?“
ViSskiptin hagkvæmust við
Yjeta^er^
iéðjömi
Reykjavík.
'ene.
dilt:
áóonar