Samtíðin - 01.05.1946, Qupperneq 17
SAMTlÐIN
13
SIGFÚS HALLDDRSSDN:
Einn dagur
í Stratford-Upon-Avon
Sigfús Halldórsson
EGAR ÉG vann við Repertory
Thcalre í Northampton, kom ég
að máli við leiktjaldamálarann Os-
borne Robinson — hann er vel met-
inn listamaður í Englandi — og tjáði
honum, að mig fýsti mjög að fara
snögga ferð til Stratford. Þáð er
tveggja tíma ferð frá Northampton
með járnbrautarlest.
Hann tók vel í það og skrifaði
bréf til vinar síns, sem vann við
Shakespeare Memorial Theatre.
Einnig skrifaði hann á miða það
lielzta, er ég skyldi gera mér far um
að sjá þar. Tíminn var svo naumur,
að ég inátti aðeins eyða þar einum
degi.
Klukkan 7 að morgni þess 1. sept.
var ég kominn á járnbrautarstöðina,
með svolitinn matarböggul, og beið
Jiess, fullur eftirvæntingar, að lest sú
rynni inn á stöðina, sem flytti mig
til þess staðar, sem ég hafði lengi
þráð að sjá. Lestin kom, og kl. liálf
átta var hún komin af stað. Ég var
einn í klefa og naut þess vel. Það
var lilýtt veður, en sólarlaust. Á ein-
um stað stöðvaðist lestin, og' fékk ég
þá ferðafélaga: Hjón með þrjú börn.
Börnin voru kát og gátu aldrei ver-
ið kyrr. Sennilega var það af því, að
pabbi þeirra var kominn lieim úr
stríðinu.
Klukkan hálftíu nam lestin stað-
ar í Stratford. Stöðin þar er lítil,
rúmar aðeins tvær lestir samtímis.
Ég kvaddi samferðafólkið og hél't
leiðar minnar. Það var komin rign-
ing og ekki úllit fyrir annað en að
]iað mundi halda áfram að rigna.
A VAR hin langþráða stund
upprunnin. Ég var staddur í
Stratford, fæðingarbæ William
Sliakespeai'e’s. Hér fæddist hann ár-
ið 1561 og dó 1616.
Ég hafði meðferðis' kort af bæn-
um, sem Robinson hafði léð mér, og
ætlaði ég fyrst af öllu til leikhúss-
ins að hitta Mr. Savery, en svo hét
vinur Robinson’s, en áætlun mín
lireyttist nokkuð. Mér varð svo star-