Samtíðin - 01.11.1946, Blaðsíða 8

Samtíðin - 01.11.1946, Blaðsíða 8
4 SAMTÍÐIN Vitiö þér þetta ? Svörin eru á bls. 24. 1. Hver orti þetla: Engir inenn því orkað fá og aldrei lieldur munu kunna að lialda kvenna hjörtum frá honum, sem þær vilja unna.(?) 2. Hvenær komust Kapetingar til valda í Frakklandi, og hverjir létu þá af völdum þar í landi? 3. Hvaða stórpóUtískur atburður gerðist 27. sept. 1940? 4. Hvað kostaði síðasta styrjöld Bandaríkin í beinum útgjöldum? 5. Hvað hétu flugvélar þær, er eink- um var beitt af Bandamönnum í síðustu styrjöld? breytt að efnainnihaldi, eins og m. a. má marka á því, að tannskemmdir voru lítt eða ekki þekktar fram undir vora daga. Allt þetta sýnir og sannar, að fáar fæðu- tegundir, ef þær eru vel valdar, fullnægja næringarþörf líkamans miklu betur en margar fæðutegundir, ef þær eru óheppi- lega valdar. Frá sjónarmiði næringarfræð- ingsins er það ekki fábreytt fæði að borða rúgbrauð og smjör eða kartöflur og smjöi dag eftir dag, ég tala nú ekki um, ef við það væri bætt ögn af mjólk og nýju grænmeti. Og þegar þess er nú gætt, að upp undir það helmingur af viðurværi nútíma íslend- inga er einhæf sterkja, þá getur varla nokkrum manni blandazt hugur um, að fæðið sé orðið mun fábreyttara en áður að efnainnihaldi og næringarverðmætum, úr því lítið eða ekkert hefur verið gert til að bæta þetta upp á annan hátt. Það er einungis í matreiðslu, sem fjölbreytnin hefur aukizt, og það til stórra muna. Það er engu líkara en að átt hafi að draga líkamann á tálar með því að færa fæðuna í þeim mun glæsilegri skartklæði, sem hún er sjálf fátæklegri.“ SIGURÐUR SKÚLASGN: Við Reykjanessröst ÉG VIL andast við sjó fram, þar sem land mitt heyr miskunnarlausa baráttu við ólgandi reginhaf, sem er tæki eyðingarinnar, þungað heimskum fiskum. • Ég vil hlusta á ofsalegar stunur þessa hafs, er það svellur við ströndina og vötn þess byltast sem friðlaust óþol í brjósti einyrkjans, er berst hefðbundinni baráttu feðranna í óþurrkatíð undir haust. Dysjið mig í flæðarmálinu, þar sem tryllt hafið sækir á og reynir að tortima landinu, er í þúsund ár var hæli aðkominna höfðingja og niðja þeirra í glæsileik, kúgun og endurreisn. Leyfið mér að rotna í klettagröf milli staðfastra dranga, er bjóða byrginn í stoltri vörn gegn óvígu afli, sem holar bergið og breytir því loks í dularfullar borgrústir hins myrka djúps, en þær munu skarta sægróðri og gerast hýbýli undarlegra kvikinda. Nei, brennið mig í flæðarmálinu og leyfið ösku minni að þyrlast á mótum lands og hafs, fjarri kyrrstæðu andvaraleysi þess fólks, sem lifir,

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.