Samtíðin - 01.11.1946, Blaðsíða 29
SAMTÍÐIX
25
Islenzkar
mannlýsingar XVI.
EINAR H. KVARAN segir um Gest
Pálsson:
„Það er álitamál, hvort Gestur
Pálsson hefur ekki verið fyndnastur
íslenzkur rithöfundur að fornu og
nýju. Hann er að minnsta kosti í
hópi fyndnustu mannanna. Fyndnin
er auðvitað nokkuð beiskjublandin,
en hann átti ógrynnin öll af henni.
Ég held, að mér hafi þótt hann
skemmlilegasti maðurinn, sem ég
hefi verið með, þegar hann naut sín
að fullu. Því olli fyndnin. Lífið varð
glampandi af skringilegu mannviti
í viðtali við hann. Það var út af end-
urminningum um þær stundir, að
þessar línur urðu til:
„Og landið varð skinandi’ af ljósi og von
og líf okkar ríkt eins og Salómon,
þótt ættum við ekkert að borða.“
En það var ekki fyndnin ein, sem
gat dregið menn að honum.
Það var annars ekkert auðvelt að
átta sig á Gesti Pálssvni. Hann var
fremur torskilinn, enda voru þeir
víst nokkuð margir, sem ekkert
skildu í honum.
Hann, sem hafði jafn-mikið af
brjóstgæðum, viðkvæmni, með-
aumkvun, hafði jafnframt, eða taldi
sjálfum sér trú um, að hann væri
fullur af mannfyrirlitning. Ég býst
jafnvel við, að ef hann hefði verið
spurður, hver væri sú aðaluppspretta
Meðal annars:
CREAM CRACKERS
Marie
Milk
Piparkökur
KREMKEX
Stjörnukex
SALOON
Björgunarbátakex
Þverholti 13. Símar: 3600, 5600.
Esjukex er yðar kex.
Vélsmiðjan Sindri
[jverfisgötu 42 Sími4722
Alls konar járnsmíði
og vélaviðgerðir.
fyrir
sjávarútveg,
iðnað
°g
landbúnað.