Samtíðin - 01.11.1946, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.11.1946, Blaðsíða 15
SAMTlÐIN 11 lítilvægum áhyggjuefnum skýtur upp úr djúpi endurminninganna. Hún fagnar yfir rugguhesti, sem henni hefur tekizt að útvega syni sinum, og i sömu andránni minnist hún þess, að drengnum auðnaðist aldrei að koma á bak hestinum. Þá kviðir sálin þvi einnig, að henni muni ekki tak- ast að flyljast úr bústað sínum, áð'ur en nýi yfirlæknirinn komi. Henni er fullkunnugt um, að nýr yfirlæknir Iiefur verið ráðinn og að hans getur verið von á liverri stundu ásamt fjölskyldu hans. En einmitt þegar hún er alveg í öngum sínum yfir þvi, að veikindin lcomi í veg fyrir, að hún geti flutzt burt í tæka tíð, minnist hún þess, að dauðinn liefur þegar leysl þau vandræði. Lík hennar ligg- ur að vísu enn í læknisbústaðnum, en það ætti nú ekki að þurfa að valda hinu nýkomna fólki miklum örðug- leikum. Ibúðin hafði verið vendilega rýmd. Rétt í því að sálin er að hugsa um þetta með yfirlælcninn, kemur maur skríðandi. Hann skríður eftir jörð- inni, án þess að víkja hársbreidd fyr- ir þeirri, sem þarna líggur, en sá er háttur maura, sem ekki láta sér allt fyrir brjósti brenna. Þessi niaur hag- ar sér þó ærið skringilega. Hann skríður inn í hönd liinnar dauðu ann- ars vegar og kemur út.úr henni hins vegar. Þegar sálin sér þetta, rifjast upp fyrir henni eitthvað gamalt, sem liún liefur ratað i fyrr á tímum. Einu sinni áður hefur hún verið þoku- kennd vera, skuggi, sem maur gæti skriðið gegnum. Hún veitekki hvenær. Það hlýtur að vera mjög langt síðan. Sálin liggur og rifjar upp gamlar minningar. Hefur hún ekki einlivern tíma verið frjáls, létt og óháð? Síðan hefur hún verið í fangelsi, hún hefur verið fjötruð jai’ðneskum viðjum. Hún hefur verið þunglamaleg, hún liefur haft ákveðna lögun, liún hefur lolið siðum mannanna. Hún liefur þjáðst, hún hefur elskað. Hún hefur að vissu leýti verið fjölruð böndum, svo að þúsundum skiptir. Ilún finnur sig gagntekna af liam- ingju yfir þvi að vera aftur orðin frjáls, vera aðeins sál, en þessi fagn- aðarvíma hverfur, áður en varir. Enn er liún of mjög á valdi hins jarðneska. Sálin saknar mannlífsins. Hún er eins og fangi, senvdcvartar undan því, að hann hafi neyðzt til að yfirgefa fangelsi sitt. Frelsið er tóm- legt, það er kvíðvænlegt. Sálin veit ekki', lil hvers á að nota það. Ilún er búin að gleyma, hvernig hún eyddi tímanum liérna áður fyrr. Hún saknar ástar mannanna, blíðu- atlota litilla barna, spennandi við- burða lífsins. Hvað er frelsið annað en vonleysi, einvera, leiðindi? Iiún teygir vofuhendur sínar móti himni, barmar sér af saknaðarkvöl, af um- komuleysi þess, sem hvergi á höfði sinu að að halla. Og sem sálin er stödd í þessari ör- vinglun, verður liún þess vör, að tvær mannverur koma gangandi yf- ir heiðina, beina leið þangað, sem hún er, og þar sem lienni hefur ekki enn tekizt að semja sig að hinum nýju aðstæðum, verður hún alveg dauð- skelkuð. „En ég sem er alveg nakin“, hugsar hún. „Þetta dugar ekki. Ég hef hvorki tangur né tötur til að skýla nekt minni með.“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.