Samtíðin - 01.11.1946, Blaðsíða 24
20
SAMTÍÐIN
er rakað liafa saman fé vegna óleyfi-
legs haignáðar á „svörtum markaði“.
Hafa þessir bófar komizt yfir mikl-
ar fjárhæðir með því að láta greipar
sópa hjá ýmsum veitingamönnum.
Geysimikið kveður að gimsteina-
þjófnaði, sem var með öllu óþekkt
fyrirbrigði fyrir nokkrum árum.
Þetta stafar af skorti á ósviknum
gimsteinum í Bretlandi nema lijá
fornsölum.
Árið 1944 voru um það bil 2.000
klæðskeraíbúðir rændar og síðastlið-
ið ár miklu fleiri. Óvarkárir við-
skiptamenn kvarta mjög undan þvi,
að fötum þeirra hafi verið stolið úr
efnalaugum, þar sem átti að lireinsa
þau og pressa. Talið er, að eigendur
sumra efnalauganna hafi jafnvcl liaft
samvinnu við þjófa gegn ríflegum
ómakslaunum.
Siðan styrjöldinni lauk, hefur mik-
ið kveðið að hilaþjófnaði i Englandi.
Jafnvel þótt hafa kunnist upp á hin-
um stolnu bílum, er það segin saga,
að búið er að hirða úr þeim dýrmæt-
ustu hlutana, svo sem vélarhluta,
lijólharða o. fl. Verð á notuðum bif-
rciðum hefur verið mjög hátt í Bret-
landi upp á síðkastið, og liefur þjóf-
unum því reynzt það ábatasöm at-
vinna að stela bílum, þar sem þeir
þekktust ekki.
Geysimikið er verzlað á strætum
og gatnamótum með alls konar toll-
svikna muni, svo sem myndavélar,
sjónauka, úr, hyssur o. s. frv, sem
hermenn handamanna hafa eignazt
á meginlandinu í skiptum fyrir vindl-
inga og haft siðan með sér til Bret-
lands, án þess að greiða af þeim
nokkurn toll.
Kristinn Guðnason
Klapparstíg 27
Sími 2314 Reykjavik
Sel og útvega alls konar vara-
hluti til bifreiða, einnig verk-
færi alls konar.
Eg útvega hinar velþekktu
St. Paul Vökvasturtur.
Munið, að margra ára reynsla
er trygging fyrir hagkvæmum
viðskiptum.
POHLHiANIM
PÍANÓ
£tutlauyur JcMMh
Cc.
Hafnarstræti 15.
Sími 4680.