Samtíðin - 01.11.1946, Side 27
SAMTÍÐIN
23
hve óheppilegur barnabókahöfundur,
í venjulegri merkingu þess orðs,
hinn uppreisnarsinnaði bóndi á Litlu-
Strönd hlaut að vera. Heima i föður-
garði var líka til slitur af sögu lians,
Upp við fossa, og vantaði drjúgum
aftan af, svo upplesin og úr sér geng-
in var bókin.
Þegar Lestrarbók Sigurðar Nor-
dals kom fyrst út, árið 1924, var þvi
slegið föstu, að dýrasagan Heimþrá
eftir Þorgils gjallanda væri ekkert
minna en sígild bókmenntaperla. í
inngangsritgerð Lestrarbókar lét
Nordal frá sér fara þessi spámann-
legu orð: „En mönnum mun ein-
livern tíma skiljast, að Ofan úr
sveitum eftir Þorgils gjallanda (1892)
var hýsna merkilegur áfangi í sögu
mennta vorra og menningar. Verk
þau, sem siglt hafa í lcjölfar þeirrar
bókar: sögur og kvæði Guðmundar
Friðjónssonar, þulur Huldu og mik-
ið af öðrum kveðskap, sem prentað
er á víð og dreif eða alls ekki, — bera
því órækt vitni, hvern skapandi mátt
sveitamenning vor á i sér fólginn“.
Arnór Sigurjónsson liefur séð um
þessa útgáfu af verlcum Þorgilss
gjallanda, og fylgir henni 192 hls.
ritgerð eftir liann um höfund og
verk. Um þá ritgerð er í skemmstu
máli það að segja, að trúlega liefði
einhver öðlazt háskólastig fyrir
veigaminni aðalritgerð. Fer hér sam-
an hjá Arnóri frábær kunnleiki á
umhverfi, aðstæðum, samtíðarmenn-
ingu og verkum skáldsins; ríkur
skilnirigur á viðhorfi þess til samtíð-
arinnar, og er um allt þetta fjallað
af mikilli alúð og samvizkusemi. Er
mönnum eindregið ráðið til að lesa
VICTOR
ve^naÉarvöruverzlun
Laugavegi 33 — Sími 2236.
Hefir á boðstólum allskonar
vefnaðarvörur og fatnað á
DÖMUR,
HERRA
og
BÖRN.
Góðar vörurl
Fjölbreytt úrvall
F/ð höfuwn:
FAGMENNINA
VEGGFDÐRIÐ
MÁLNINGUNA
UJEGJVBOGIJVJV
Laugaveg 74, Reykjavík.
Sími 2288.