Samtíðin - 01.11.1946, Side 28
24
SAMTÍÐIN
ritgerð Arnórs, áður en þeir lesa verk
Þorgilss.
Þessi útgáfa er stórum þakkarverð,
svo seni útgáfa Helgafells á Þyrnum
Þorsteins Erlingssonar, Ljóðmælum
Páls Ólafssonar, Ritsafni Ólafar frá
Hlöðum og Ljóðmælum Stefáns frá
Iívítadal. Er hér um mikið menning-
arlegt átak að ræða af liálfu einka-
forlags á örstuttum tima. En í sam-
bandi við Þorgils gjallanda og allan
þann fjölda Suður-Þingeyinga, er
auðgað liefur íslenzkar bókmenntir,
vaknar sú spurning, hvort ekki sé
fullkomið rannsóknarefni, hvernig
allt það skáldakyn liafi sprottið upp
í einni og sömu sýslu þessa lands.
Ritgerðir Barða Guðmundssonar:
Uppruni íslenzkrar skáldmenntar,
sem hirzt liafa í tímaritinu „Helga-
felli“, benda- til, að hér gæti verið um
IÞIJF handcletmer
nær óhreinindum betur af höndum yðar
en fléstar aðrar handsápur.
ÐIF handcleaner
er einnig ágætur til að hreinsa með alum-
inium potta og ryðfallna, chromaða hluti.
ÐIF handcleaner
fæst í flestum verzlunum.
Heildsölubirgðir
0. J0HNS0N & KAABER H.F.
athyglivert viðfangsefni að ræða
skarpskyggnum sagnfræðingi. En
jafnframt hygg ég, að lærður og
glöggur mannfræðingur þyrfti að
gera nokkrar atliuganir í því sam-
bandi og það heldur fyrr en seinna.
S. Sk.
SVÖR
við spurningumim á bls L
1. Sigurður Breiðfjörð.
2. Árið 987. Karlungar.
3. Þjóðverjar, ftalir og Japanar
gerðu 10 ára hernaðarhandalag.
4. 200 milljarða dollara.
5. Mdsquito IV, Halifax III, Spitfire
XII, Liberator, Tempest, Mustang
P—51, Mitcliell og Thunderbolt.