Samtíðin - 01.04.1947, Qupperneq 6

Samtíðin - 01.04.1947, Qupperneq 6
2 SAMTÍÐIN NYR BÓKAFLOKKUR: Handbókasafn Helgafells Helgafell hefur nú hafið útgáfu nýs flokks úrvalsbókmennta. Heitir hann HANDBÓKASAFN HELGAFELLS, og'koma í hon- um bækur um vísindi, tækni, uppgötvanir og ýmislegt, sem er skylt þessu. Hefur verið valið i þennan útgáfuflokk með sérstöku tilliti til íslenzkra aðstæðna og með það fyrir augum, að bækurn- ar gætu veitt fróðleik og gert gagn. Fyrsta bókin í þessum flokki er: Á morgni atomaldar eftir Helge Tyrén Hér er um stórmerka bók að ræða, sem vakið hefur mjög mikla athygli, enda komið út í mörgum upplögum. Efninu er skipt í nokkra kafla, og er gerð grein fyrir þessum vísindum frá upphafi til vorra daga á svo skýran hátt, að allir geti fylgzt með. Kaflarnir heita: Atómhugtak fyrri alda. (Fornöldin. Miðaldir. Siðari aldir.) Atómhugtak 19. aldar: (Dalton. Tilgáta Prouts. Frumefnakerfið. Rafmagnseindir efnisins.) Atómhugtak nútímans: (Upphaf rafeindakenningarinnar. Thomson uppgötvar raf- eindina. Becqueril uppgötvar geislaverkunina. Uppgötvun atómorkunnar. Ernest Rutherford uppgötvar atómkjarnann. Bohr endurbætir atómkenningu Rutherfords. Henry Moseley. Hnúturinn leystur með orkuskammtakenningunni. Samstæð frumefni fundin. Magnrofsmælirinn endurvekur kenningu Prouts. Hugleiðingar Astons. Fyrirlestur Rutherfords, Upp- spretta atómorkunnar finnst.) Gerð atómkjamans: (Rutherford segir fyrir um nevtróna. Einingin leyst upp í fjöld. Iiugleiðingar Diracs. Innra jafnvægi atómanna raskað. Kjarnbreyting úrans uppgötvuð. Atómsprengjan.) Á morgni atómaldar. Allar bækur Handbókasafnsins fást jafnóðum og þær koma út í öllum bókaverzlunum. Hverja er hægt að fá út af fyrir sig. HELGAFELL Garðastr. 17. Aðalstr. 16. Laugaveg 100. Njálsgötu 64

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.