Samtíðin - 01.04.1947, Page 9

Samtíðin - 01.04.1947, Page 9
SAMTÍÐIN 5 MERKIR SAMTÍÐARMENN Sigurður Þórðarson tónskáld er fæddur á Gerðhömrum i Dýra- firði 8. apríl 1895. Foreldrar: Séra Þórður ólafsson, síðar prófast- ur á Söndum, og María ísaksdóttir, kona hans. — Sigurður lauk prófi úr Verzlunarskóla íslands 1915. Snemma hneigðist hugur hans að tónlist. Á árunum 1916—18 stundaði hann nám við Tón- listarskólann i Leipzig með fiðluspil að sérgrein. Kynnti sér karlakórsöng i Þýzkalandi og Austurríki árið 1927. Sigurður hef- ur verið mjög mikilvirkur i isl. tónlistarlífi, enda þótt allt það Sig. Þórðarson starf hafi verið unnið i tómstundum. Hann stjórnaði karlakórnum „Þröstum" i Hafnarfirði 1924—26. Stofnaði 1926 „Karlakór Reykjavíkur" og hefur stjórnað honum síðan. Hefur sá kór látið mikið til sín taka, haldið fjölda sam- söngva og farið þessar söngfarir til útlanda: Til Danmerkur, Noregs og Sviþjóðar 1935, til Dan- merkur, Þýzkalands, Austurríkis og Tékkósló- vakíu 1937 og loks til Bandarikjanna og Kanada 1946. Söng kórinn í þeirri för samt. 56 sinnum við frábærlega góðar undirtektir, og var hér um mjög giftusamlega kynningarför að ræða. Tók förin nál. 2Mi mánuð. Sigurður er athygli- vert og vinsælt tónskáld. Af tón- Greer Garson Greer Garson, hin heimsfræga kvikmynda- leikkona, er fædd á Norð- ur-lrlandi 29. sept. 1902. For- eldrar hennar fluttust til Lon- don, er hún var barn að aldri. Hún varð stúd- ent og las bókmenntasögu við háskólann i London. Ákvað sið- an að gerast leikkona og gekk i leikflokkinn: Birmingham Re- pertory Co. Fór seinna til Hollywood, en hlaut þar meiðsl og var frá verki um langt skeið. Er nú mjög vinsæl kvikmynda- stjarna. Gift leikaranum Rich- ard Ney. Robert Taylor, hinn vinsæli, Robert Taylor ameriski kvikmyndaleikari, er fæddur í Nebraskariki. Heitir réttu nafni Spangl- er Arlington Brugh og.er læknissonur. Taylor ætlaði að verða læknir, en i skólaleik einum vakti hann slíka aðdáun, að hann ákvað að gerast leikari. Nú er hann löngu heimsfrægur fyrir leik sinn í fjölmörgum kvikmyndum. A. Beverley Baxter er mjög kunnur ritstjóri, rithöfundur og stjórnmálamaður i Bretlandi. Hann er fæddur í Toronto og er nokkuð á sext- ugsaldri. Tók þátt i heimsstyrjöldinni 1914—18 með Kanadahernum. Varð eftir striðið ritstjóri Baxter við stórblöð Beaverbrooks: The Daily Express og Sunday Express í London. 1935 var Baxter kosinn á þing, sem fulltrúi ihaldsmanna í Wood-Green kjördæmi. Hefur ritað ýmsar bækur, m. a. sjálfsævisögu og snjallar smásögur. Fredrik Böök prófessor er einn af fremstu bókmenntafræðingum Svia og snjöllustu rithöfundum á Norðurlöndum. Fæddur í Krist- ianstad 1883. Hlaut doktorsnafnbót við háskólann í Lundi árið 1907. Var síðan dósent í bókmenntasögu í Lundi, en gerðist prófessor þar 1920. Árið 1921 varð Böök bókmenntalegur starfs- maður við Svenska Dagbladet í Stokkhólmi, en búsettur i Lundi. Kjörinn meðlimur Sænsku akademíunnar 1922.. Böök hefur sam- ið fjölda merkra fræðirita og mjög læsileg ritgerðasöfn. verkum hans má nefna: Hátið- arkantötu 1930, Forleik fyrir hljómsveit, óperettuna 1 álög- um (við texta eftir Dagfinn bónda), Hátiðamessu, en auk þess mörg sönglög fyrir karla- kór, einsöngslög, pianó- og org- elverk. — Sigurður hefur síð- an 1931 verið skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins. Hann kvænt- ist árið 1927 Áslaugu Sveins- dóttur, búfræð- ings frá Hvilft í önundarfirði, Árnasonar. Sig- urður hefur að maklegleikum verið sæmdur riddarakrossi liinnaríslenzku fálkaorðu fyrir tónlistarstörf sín.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.