Samtíðin - 01.04.1947, Qupperneq 19

Samtíðin - 01.04.1947, Qupperneq 19
SAMTÍÐIN 15 hundruð milna frá landi, haldandi dauðahaldi í björgunarhring og star- andi sárum, dauðþreyttum augum gegn stormi og sjávargangi í leit að skipi. Haglélið lamdi þau í andlitið, og öðru hvoru færðu stórar öldur þau í kaf. Maxine horfðist aftur í augu við Arinsky. „Það er að ske,“ sagði hann. Það var engu líkara en hann hefði lesið hugsanir hennar. „Vinir okkar verða úteygir af undr- un, þegar við lýsum þessu. „Ég er sjálf orðin úteyg,“ sagð Billie Bowen glottandi. Tíminn drattaðist áfram. 1 klst., 2 ldst., eða voru það kannske 2 aldir? Samtalið varð sundurlaust, dó út, lifnaði ögn við aftur. Maxine sá nú nýja mynd fyrir hugsþotssjón- um sínum. Það var andlit, karl- mannsandlit, frítt, festulegt, með dásamleg augu. Þessi augu horfðu uú á hana eins og oft áður síðustu tvö árin, ásakandi og tortryggnis- lega. Hún vissi, að hann áleit hana kaldlynda og grimma. Hilary Mars- hall hataði hana ekki eins og Brent gerði, en hann var næstum eins strangur i dómum sínum um hana. Hvað mislíkaði honum nú? Efaðist hann um hugrekki hennar? Enginn hafði nokkum tíma efazt um það. Hann var óánægður með eitthvað, hvað sem það nú var, og það var eins og að vera fastur í skrúfstykki, að geta ekki hreyft sig, að finna þessi augu stara spyrjandi á sig. Hún reyndi að hrista þetta af sér og hugsa um eitthvað annað. Þetta var miklu verra en matborðið. öldurn- ar urðu stærri og stærri, en það var ekki sérlega kalt. Það var að dimma. Spensley fór aftur á sinn stað í hringnum. Hann var mjög þreytu- legur. Maxine var orðin þreytt og leið illa. Hana svimaði, þegar hringurinn hreyfðist upp og niður í sjónum. Til- hugsunin um, að augu Hilary Mars- halls hvíldu á henni, gerði hana hrædda. Hún vildi ekki deyja. Hún leit á Brent. Það var langt síðan hann hafði sagt orð. Á honum var ekki annað að sjá en að liann tæki þess- um erfiðleikum með jafnaðargeði. Sama máli virtist gegna um frú For- sythe. Næst varð henni litið til Car- rillo, sem var beint andspænis henni. Hún horfði andartak á hana og hélt svo áfram að stara út í bláinn. Max- ine greip andann á lofti. Þetta and- artak, sem þær horfðust í augu, vai’ð henni ljóst, að hjá Carrillo var öll von úti. öi-vinglunin skein úr þeim. Þegar Carrillo sá skilning og samúð í svip Maxine, sagði hún: „Ég er hrædd um, að ég verði félögum min- um til byrði. Ég er að gefast upp. Ég hef unnið meir en kraftar mínir leylðu síðastliðið ár. Hjartað er bil- að. Ég er að fá kast núna, en hef engin meðöl. Hún beit á vöi’ina, og ósegjanlegur kvalasvipur markaði rétt sem snöggvast andlit hennar. „Ég vil ekki vera til óþæginda. Skil- ur þú það, Boris?“ Það vottaði fyr- ir di-ottnunargirni í röddinni. „Láttu mig ekki verða þeim til óþæginda, sem þegar hafa meii-a en nóg gð bera.“ Allt í einu féll hún fi’am yfir sig, greip annarri hendi um hálsinn, sleppti handfanginu og sökk. 1 sama vetfangi þyrlaðist sjói’inn upp kring- um björgunai’hringinn. Allir stungu sér eftir henni. Hai’dy flugmaður

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.