Samtíðin - 01.04.1947, Qupperneq 28

Samtíðin - 01.04.1947, Qupperneq 28
24 SAMTÍÐIN íslenzkar mannlýsingar XX. RÓFESSOR Jón J. Aðils lýsir einum svipmesta manni Islend- ingasögunnar, Skúla landfógeta Magnússyni, á þessa leið: „Að ytri ásýndum bar Skúli Magnússon eigi mjög af öðrum sam- tíðarmönnum sínum, en nokkuð hafði hann við sig, það er ósjálf- rátt vakti athygli manna og eftir- tekt, svo flestum varð starsýnt á hann í fyrstu. Hann var með hærri meðal- mönnum á vöxt, réttvaxinn, sívalur og hvelft brjóstið, handsmár og vel- limaður, hvikur mjög í öllum hreyf- ingum, skinnræstinn og hörunds- bjartur, toginleitur og bólugrafinn mjög, varamikill og þó eigi munn- ljótur, fráneygur og svarteygur, svipmikill og stórhöfðingleitur og svipurinn nokkuð áhyggjufullur. Hann var flestum mönnum hvell- rómaðri, en seinmæltur og var sem hann hiti ó vörina, er hann talaði. Enginn var liann sérlegur burða- maður, en þolinn, þrautseigur og heilsugóður. Varð honum því nær aldrei misdægurt fyrri en nokkuð á efstu árum sínum, og má það furða heita um mann, er átti jafn erfiða og ónæðiSsama ævi. Við- hafnar- og skartsmaður var liann að sönnu, þótt eigi bærist hann milcið á hversdagslega hvorki í klæðahurði né öðru. Hann var maður hreinlátur og reglufastur og hinn kurteisasti í látbragði, en þó fráleitur ’öllu lát- æði og affarasniði. Hann var meðal- lagi glaðlyndur og heldur fálátur og Egill Árnason Hafnarhúsinu. Sími 4310. Selur: Jám og stál til iðnaðar. Vélar fyrir jám- og blikksmiði. Verkfæri alls konar. Brennigólfborð (Parket). Kvarz. Hrafntinnu. Silfurberg o. fl. til hús- húðunar. H p SÍöKLÆÐAGERÐ ISLANDS Reykjavík Framleiðir neðantaldan varning: Almenn gul olíuklæði fyrir konur og karla Svartar olíukápur fyrir karla og drengi. Vinnuvettlinga, ýmiskonar. Kápuvarning af ýmsu tagi fyrir konur, karla, telpur og drengi, úr margs konar efnum. H p sjöKLÆÐAGERÐ ISLANDS Reykjavík Símar 4085 & 2063.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.