Samtíðin - 01.04.1947, Page 32

Samtíðin - 01.04.1947, Page 32
28 SAMTÍÐIN Skopsögur JJR. EATON, fyrrum rektor Madi- sonsháskólans, var elskaður og virtur af nemendum sínum, enda hógvær maður og af hjarta lítillátur. Eitt sinn hafði stúdent nokkur tek- ið þátt í kappræðu í návist rektors. Að sennunni aflokinni mælti piltur- inn við dr. Eaton: „Segið mér, kæri rektor, hvernig fannst yður mér takast?“ Dr. Eaton leit góðlátlega á pilt- inn og svaraði: „Jón minn, ef þér reyttuð nokkr- ar fjaðrir úr vængjum ímyndunar- afls yðar og bættuð þeim i stélið á rökvísi yðar, er ég ekki frá því, að þér gætuð flutt skárri ræðu.“ J^YGIFT HJÓN höfðu notið hinna langþráðu hveitibrauðsdaga. Nú voru þeir sem á enda. Þau höfðu ferðazt víða og skoðað alla fegurstu staði, sem þau höfðu getað leitað uppi. Allra hugsanlegra kræsinga höfðu þau neytt. Satt að segja voru þau orðin hálfvegis leið hvort á öðru, en vildu ekki við það kannast. Að lok- um mælti unga konan óvart í duttl- ungakasti: „Væri nú annars ekki gaman að hitta, þó ekki væri nema einn einasta vin?“ „Jú, sannarlega," anzaði maðurinn og andvarpaði þungt, „jafnvel þó það væri svarinn óvinur.“ JJROTTINN MINN dýri, hvað þessi kerlingarfjandi er ægilegur! Er hún ekki alveg stórbiluð?" sagði lag- leg stúlka við yfirlækni á geðveikra- hseli. MÞekkt innlend immleiösln : Vörpugarn Dragnótagarn Línugarn Pakkagarn Fiskilínur. BOTNVÖRPUR fyrir togara og togbáta. H.F. HAMPIÐJAN Reykjavík. Símar 4336, 4390. Borgartún 4. Sími 7049. Húsmteður Aukið heimilisánægjuna með því að hafa ávallt Stiömu bú&L 'lfomu biíóLncf á borði yðar. ■ Veljið um 8 Ijúffenga búðinga.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.