Samtíðin - 01.12.1951, Blaðsíða 4

Samtíðin - 01.12.1951, Blaðsíða 4
SAMTÍÐIN NÝJUSTr BÆKIJRNAR: Oldin okkar. Síðari hluti þessa einstæða ritverks fjallar um viðburði áranna 1931—51. Hann er nákvæmlega eins úr garði gerður og fyrri hlutinn, en lítið eitt stærri. Þessi nýstárlega samtíðarsaga œtti að vera til á hverju íslenzku heimili. Aldarfar og' örnefni. Sögulegur fróðleikur og örnefnasafn úr önundarfirði. Merk bók og fróðleg. Upplag aðeins 400 eintök. Yng’vildur fögurkinn. Söguleg skáldsaga eftir Sigurjón Jónsson. Efnið er sótt i Svarfdæla sögu. Brúðkaupsfei’ð til Paradísar. Mjög skemmtileg og geðþekk bók eftir Thor Heyerdahl, höf. bókarinnar Á Kon-Tiki yfir Kyrrahaf. — í þessari nýju bók segir frá brúðkaupsferð þeirra hjóna til Suðurhafseyja og langri dvöl þeirra þar. Þau höguðu lífi sínu að hætti þarlendra manna og rötuðu í mörg ævintýri. Á Kon-Tiki yfir Kyrrahaf. örfáum eintökum af þessari eftirsóttu bók verð- ur skipt milli bóksala um líkt leyti og hin nýja bók Heyerdahls kemur út. Hér er um að ræða óvenjulega bók um óvenjulegt afrek, sem vakið hefur alheimsathygli. Þegar hjartað ræður Ný, heillandi skáldsaga eftir Slaughter, höf. bókarinn- ar Líf í lœnishendi. Frúin á Gammsstöðum. Mjög spennandi og dramatísk skáldsaga eftir John Knittel, víðkunnan svissneskan rithöfund. Hertogaynjan. Spennandi skáldsaga um ástir og baktjaldamakk eftir Rosa- mond Marshall, höf. „Kittýjar.“ Brúðarleit. Viðburðarík, spennandi og ævintýrarík skáldsaga líkt og Sigur- vegarinn og Bragðarefur. Sæluvika. Smásögur eftir Indriða G. Þorsteinsson, sem hlutskarpastur varð í verðlaunasamkeppninni s.l. vor. Kennslubók í skák. Mjög góður leiðarvísir um skák eftir Emanuel Lasker, fyrrv. heimsmeistara í skák og kunnan rithöfund um þessi fræði. Ung og saklaus. Ný „gul“ skáldsaga eftir Ruby M. Ayres, víðkunna og vin- sæla brezka skáldkonu. Handa börnum og unglingum: Reykjavíkurbörn. Endurminningar úr Austurbæjar- skólanum í Reykjavík eftir Gunnar M. Magnúss. Hér er sagt frá börn- unum sjálfum og þeim heimi, sem þau skilja bezt. Músin Peres. Falleg bók með mörgum litmynd- um handa litlu börnunum. Músaferðin. Ný útgáfa á þessari fallegu og skemmtilegu bók, sem litlu börnun- um virðist þykja vænst um allra bóka. Framantaldar bœkur fást hjá bóksölum um land allt og beint frá úgefendum. Draupnisútgáfan — ISunnarútgáfan Pósthólf 561. — Reykjavík. — Sími 2923. Anna í Grænuhlíð. Ný útgáfa á þessari afar vinsælu telpnasögu, líklega vinsælustu bók sinnar tegundar, sem þýdd hefur verið á íslenzku. Lífið kallar. Mjög góð saga handa telpum og unglingsstúlkum, prýdd ágætum myndum. Ævintýrahöllin. Ákaflega spennandi og skemmtileg saga handa börnum — drengjum jafnt sem telpum. Segir frá sömu söguhetjum og í Ævintýraeyjunni.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.