Samtíðin - 01.12.1953, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN
5
..Sutni’i halhir"
í Þjóðleihhúsinu
Katrín Thors
LEIKRIT Bandaríkjamannsins, Tennessee
Williams, hafa á undanförnum árum farið
sigurför um heiminn. Sýningar á þeim
gera ákveðnar kröfur til ljósatækni, og
sviðsbúnaður er mjög með nýtizkubrag.
Það var gott, að Þjóðleikhúsið lét ekki
dragast lengur að sýna leik eftir Williams.
„Sumri hallar“ krefst skapandi leikstjóra,
og uppfyllir Indriði Waage það skilyrði. —
Hann hefur áður sýnt, að hann er mikiis
megnugur í átökuin sínum við verk amer-
ískra „módernista“ (Hái Þór, Sölumaður
deyr). En hér þarf meira við. Áhorfend-
urnir þurfa einnig, ef vel á að vera, að
yrkja í ýmsar eyður, halda áfram að
hugsa um leikinn, eftir að heim kemur og
gott ef ekki sjá liann oftar en einu sinni,
ef þeir eiga að hafa hans full not. Enda
þótt ég liafi séð „Strætisvagn" Williams
(„A Streetcar Named Desire) i New York,
Stokkhólmi og Khöfn, mundi ég ekki láta
lijá líða að sjá liann hér, ef þess yrði
kostur.
Leikur ungfrú Katrinar Thors i „Sumri
hallar“ var hinn gleðilegi viðburður
kvöldsins. Það þarf enga glöggskygni til
að sjá, að þar er á uppsiglingu skapferðar-
leilckona, svo að um munar. Og á þvi er
okkur full þörf. Það er ástæða til að óska
ungfrúnni heilla í þeirri listrænu baráttu
við allt og alla, sem nú hlýtur óhjákvæmi-
lega að bíða hennar. Þá baráttu verða allir
meiri háttar leikarar að heyja, þar til þeir
hafa öðlazt það öryggi, sem reynslan ein
megnar að skapa. Raunverulega báru þau
Katrín Thors og Baldvin Halldórsson
fyrrnefndan leik uppi,v því að aðrir leik-
endur eru yfirleitt liugsaðir sem mann-
gerðir einar i baksýn — mannlegar for-
sendur að örlagabaráttu hinnar ógæfu-
sömu prestsdóttur, Ölmu Winemiller —
enda þótt frú Regína Þórðardóttir bryti
af sér lilekkina og „brilléraði“ i gervi
hinnar geðbiluðu prestskonu.
VÉLARNAR KALLA
Vélarnar kalla á verkamenn alla,
vinnuna tileinka sér.
Tækninnar snilli máttug á milli
mannanna sigrandi fer.
Verkmaður lúinn, viljinn og trúin
og vonirnar tilkynna mér,
að bjartari dagur og batnandi hagur
byrðinni létti af þér.
Fossanna orka eftir virkjun bíður.
óbundinn víða gufukraftur streymir.
Islandi skapast verkahringur víður
Vondjarfa garpa undratíma dreymir.
Auðlindir hafsins íslendingar þekkja.
Áburð úr lofti heppnast senn að vinna,
Náttúruöfl ef okkur tekst að hlekkja,
uppskeru vart né sáningu mun linna.
Hreiðar E. Geirdal
„Mér /)i/kir þær vera lcingar, traö-
irnar á Reykjum,“ sagði bréfberinn.
„Annars næðu þær nú ekki alla
leið heim að húsinu,“ anzaði bónd-
inn.
ALLAR BÍLAVÖRUR
verður hagkvœmast að kaupa hjá
KRISTNI GUÐNASYNI
Klapparstíg 27. — Sími 2314.