Samtíðin - 01.12.1953, Page 15
SAMTÍÐIN
9
Hún hætti að vinna, lcit á hann
stórum spyrjandi augum.
„Heldurðu, að hér hafi þá verið
fleiri ?“
„Ég held ekkert um ])að. Ég veit
það.“
„Mér kæmi ekki á óvart, þó að
svo hafi verið.“
„Jæja, sástu nokkuð?"
„Nei.“
„Heyrðirðu nokkuð?“
„Nei.“
„Hvaða grein geturðu þá gert fyrir
þessu hugboði?“
„Ég get alls ekki skýrt það. En
mér leið ónotalega. Það var eins og
eitthvað þvingandi lægi í loftinu.
Manstu, að þú fórst í skrifstofuna ?“
„Já, ég man það.“
var að hugsa um að ganga
til þín og hiðja þig að vera frannní
í búðinni.“
„Jæja.“
„Manstu, að þú fórst út með föi-
urnar?“
„Já, ég man það.“
„Manstu, að ég stóð úti, þegar
þú komst aftur?“
„Já, ég man það.“
„Ég hélzt ekki við inni í búðinni
var að Iiugsa um að ganga á eftir
þér.“
„Jæja.“
„En hvers vegna veiztu, að við
vorum ekki tvö ein hér síðastliðið
laugardagskvöld ?“
„Nokkru áður en þú komst, var
ég að brjástra við að hita þvotta-
vatnið. Allt í einu verð ég þess vís,
að ég er ekki einn í búðinni. Þetía
seitlaði gegnum hugann, varð að
fullkominni vissu, án þess að ég
skynjaði það með sjón og heyrn.
Ég leit upp, horfði hérna fram a
afgreiðsluborðið, og við súluna þarna
í horninu stóð karlmaður, laglegur,
ungur maður. Hann hallaði sér fram
á borðið og krosslagði handleggina.
Hann- var þreklega vaxinn, snyrti-
lega til fara í dökkgráum jakkaföt-
um, fölur í andliti, breiðleitur, með
dökkt hár, mjúkt og óliðað, greill
aftur á liöfuðið. Það var ekki hros i
svip hans eða augnaráði, aðeins
dýpsta alvara.
Þetta var sýnilega drengskapar-
maður. Auglitið var rólegt, fast og
djarfmannlegt. Ég horfði djúpt inn
í hlágrá, alvarleg augn hans og fann
til óþekktrar sælukenndar.
Athygli mín beindist ósjálfrátt að
vatnsfötunni. Er ég leit upp á ný,
var sýnin horfin.“
Dagur lagaði í hillunum, raðaði
öskjum og eldspýtnabúntum, braut
saman holdang og silkiklúta. Hrein-
gerningakonan vann rösklega; und-
an átökum hennar marraði í slitnum
gólffjölum.
Gamalt verzlunarhús á viðburða-
í’íka sögu. Það á líka ýms leyndarmál.
Þegar hafaldan stynur við sendna
ströndina, þétt jiokan sameinar loft
og láð og regnið drý^Air í smágerð-
um úða niður á jörðina, vaknar þessi
minning í vitnndinni.
Og ég spyr:
„Hver ert þú?“
Leitið upplýsinga um vátryggingu hjá
Nordisk Brandforsikring A/S.
Aðalumboð á íslandi, Vesturgötu 7.
Reykjavík. Sími 3569. Pósthólf 1013.