Samtíðin - 01.12.1953, Blaðsíða 23
SAMTÍÐIN
17
kaupa menn ýmsar minni háttar
nauðsynjar hjá húsverði. Sem hetur
fer er ekki alltaf verið að lesa hér
undir próf, og er því tími til að fara
í borðknattleik, lesa blöð, nýjar bæk-
ur o. s. frv.
Klukkan 5 neyta menn miðdegis-
verðar. Reyna sumir að elda sér mat
í te-eldhúsunum uppi á göngum, en
langflestir kaupa sér mat niðri í
borðsal og neyta hans við smáborð,
þar sem brátt takast fjörugar sam-
ræður. Að lokinni máltíðinni setjast
ýmsir inn í setustofuna, hlusta á út-
varp, tefla skák eða leika stundar-
korn á slaghörpu, áður en setzt er við
teikniborðin uppi í herbergjunum. Ef
einhver á örðugt með að ráða við
námsefni, er stutt á bjargarbæinn inn
í önnur herbergi til að ræða lausn
vandamálanna.
Iðnaðarmannafélagið býður garð-
búum á kvöldskemmtanir,enauk þess
hafa þeir félag með sér sjálfir, og sér
það um skemmtanahald á Garði.
Formaður félagsins býr í herbergi
Friðriks konungs IX., en varaformað-
ur í herhergi því, sem kennt er við
Ingiríði drottningu. Óþarft er að lýsa
því, hve margháttuð vinakynni
myndast á Garði. Er nú unnið að því,
að unnt verði í framtíðinni að úthluta
nokkrum garðbúum ókeypis garð-
vist, og mundi það áreiðanlega koma
ýmsum vel, enda þótt dvalarkostnaði
sé hér mjög í hóf stillt. I reglum fyrir
garðvist frá 1950 er ákveðið, að garð-
húar greiði enga húsaleigu, en hins
vegar 40 kr. á mánuði fyrir ljós, hita,
ræstingu o. fl.,“ sagði Hornby.
ÞEGAR I ðnaðarmannagarðurinn
var vígður haustið 1950, settust þar
að fulltrúar 12 iðngreina, er sóttu
samtals 7 iðnskóla. I þessum hópi
voru 5 Norðmenn og 1 Færeyingur.
Síðan hafa verið þar, auk Dana,
Finnar, Grænlendingar og 1 íslend-
ingur, en einnig til skemmri dvalar
á þakhæð hússins nokkrir Þjóðverjar
og Ameríkumenn.
Fyrsti Islendingurinn, sem dvalizt
hefur á þessum garði, heitir Kristján
Kristjánsson, prentnemi frá Akur-
cyri. Hitti ég hann sem snöggvast að
máliámiðsumarhátíð garðhúa í fyrra
sumar. Ilann stundaði framhalds-
nám við prentaraskóla (Grafisk hoj-
skole) í Höfn, en hafði áður lokið
námstíma sem pren-tsetjari hjá
Prentverki Odds Rjörnssonar h.f. á
Akureyri. Kristján lét mjög vel af
garðvistinni. Kvaðst hann hafa hlotið
hana fyrir milligöngu prentaraskól-
ans, jafnsnemma og hann hóf skóla-
nám í Khöfn. Naut liann þess, að
hann var útlendingur, en yfirleitt er
ætlazt til, að Danir hljóti ekki garð-
vist, fyrr en þcir hafa stundað iðn-
skólanám árlangt að minnsta kosti.
Kristján kvaðst horga mánaðarlega
aðeins 40 kr. fvrir ágætt einbýlislier-
hergi (eins og upphaflega var ráð
fyrir gert). Morgunverður sagði
hann, að kostaði 1 kr. og kvöldverð-
ur 2 kr. hjá húsverði. Annars væri
auðgert að matreiða sjálfur í eldhús-
um garðsins, ef menn vildu.
Þess er að vænta, að ungir íslcnzkir
iðnaðarmenn, er hugsa til framhalds-
náms í Khöfn, reyni að sækja nógu
tímanlega um vist á Iðnaðarmanna-
garðinum. Er það megin tilefni þess-
arar greinar að vekja athygli þeirra