Samtíðin - 01.12.1953, Side 27
SAMTÍÐIN
21
ráði við hana. Frú Zwill var löngu
hætt að fara í stóru deildarverzlan-
irnar til að kaupa efni og sauma svo
gluggatjöld úr því heima.
Svo þið getið rétt ímyndað ykkur,
hvernig herbergi gömlu konunnar
fer í taugarnar á frú Zwill! Ef hún
mætti ráða, mundi hún kaupa yndis-
leg húsgögn lianda mömmu sinni. Þá
mundi hún kaupa handa henni gam-
alsdags rúm með fjórum stuðlum og
fornlega dragkistu úr hlyn eða
mahoni — hlynur væri yndislegui
— og nokkrar þykkar gólfábreiður.
Svefnherbergið hennar frú Zwili
sjálfrar sem einnig er að vissu leyti
svefnherbergi manns hennar — er
úr hnotu frá Circassia með glæsileg-
um hjónarúmsábreiðum og auk þess
íburðarmiklum, lausum silkiáhreið-
um — á veturna. Á glerplötunni ofan
á búningsborðinu er feikna samsafn
af snyrtidóti hlutum,sem auglýstir
cru í fínu tímaritunum og frú Zwill
heldur, að sér nægi til að varðveita
æskufegurð sína. — Engin af „stúlk-
unum“ hefur nokkurn tima lálið sér
til hugar koma, að hún væri minna
en finim árum yngri en hún er.
Það er nú sjaldan, sem frú Zwili
er að gera sér rellu út af svefnher-
bergi móður sinnar, og hún er glöé'
yfir, að maðurinn sinn skuli hafa
ráð á að láta tengdamóður sína hafa
sérherbergi með baði. „Þetta er bara
heil lítil íbúð, elskan mín! Það er svo
miklu þægilegra!“ Og samt er frú
Zwill stundum hálf vandræðaleg,
þegar hún er að sýna nýjum vin-
konum sinum íbúðina.
Þarna er nú eldhúsið með raf-
magnskæliskáp, þar sem litlu ísmol-
Til jóla- og
tækifærisgjafa:
Ur og klukkur
Skartgripir
Borðsilfur
Listmunir
&nnig: Kventízkuvörur
ávallt í fjölbrcj'ttu úrvali hjá okkur.
Kornelíus Jónsson
Úra- og skartgripaverzlun
Skólavörðustíg 8. Reykjavík.
Símar 82056 og 81588.