Samtíðin - 01.06.1956, Síða 15
SAMTÍÐIN
11
undirmaður hans. Það var bara vit-
skertur, bandóður maður, sem grát-
bað svertingja að bjálpa sér að
fremja morð ...
Kolur skildi undir eins, hvað ég
átti við Hann starði lengi á mig og
kinkaði því næst kolli til samþykkis.
„Það skal verða eins og þú mælir
fyrir, berra,“ sagði liann. „Ég skal
tala við nokkra þeirra og lieyra í
þeim hljóðið, en ég er alveg sann-
færður um, að þeir gera það, sem þú
vilt, að þeir geri fyrir þig. Fylgdu
iuér að kofanum þarna fyrir bandan
og bíddu mín þar. Ég skal sækja þá,
og þá geturðu gert þetta upp við þá
sjálfur. Komdu, berra minn,“ sagði
Kolur íbygginn og skaut upp á mig
skyggnunum, sem glóðu í liitabeltis-
myrkrinu. Það fór um mig gleði-
skjálfti. Loksins — loksins áttu þá
uiunadraumar mínir að rætast.
Á morgun mundi Lísa verða mín.
Sæluvíman fyrirmunaði mér að gera
Uiun á réttu og röngu, heiðarleik og
glæpamennsku.
Niðurl. í næsta hefti.
——— #--------
Vrœtfir oröskviðir
Ekki veldur sá, er varar.
Enginn sér við öllum rökum. ,
Magran skyldi kaupa hest.
Falls er von af fornu tré.
Enginn ræður sínum næturstað.
Erfitt verður þeim, er illa kann.
DÖMUHATTAR og SKRAUTVÖRUR
koma fram um hverja helgi.
HATTABÚÐIN HULD, Kirkjuhvoli.
(Erla Vídalín). Sími 3660.
Ertu góð eiginkona?
1. Ertu sífellt að tala um gallana
á manninum þínum, þegar þú ert í
samkvæmi ?
2. Heldurðu áfram að nöldra við
hann, eftir að hann hefur beðið þig
afsökunar?
3. Ertu allan daginn að hugsa um
eitthvert umkvörtunaiæfni, sem þú
dembiryfir manninn þinn,þegarhann
kemur heim, þó að hann kunni að
vera dauðþreyttur?
4. Heldurðu áfram að þrátta við
hann, þó að þú hafir sannað honum,
að þú hafir alveg rétt fyrir þér?
5. Finnurðu alltaf að því við hann,
að hann setji vindla- eða vindlinga-
ösku um allt, þó að þú vitir, að hann
gerir það óvart, en ekki af ásettu
ráði ?
6. Ertu sí og æ að. kvarta undan
því, að þú hafir of litla peninga til
heimilisþarfa?
7. Ertu óþolinmóð að bíða eftir
skoðunum hans á uppeldi barnanna?
8. Minnistu oft á gamlar ávirðing-
ar hans?
9. Ertu ávallt minnug galla hans?
10. Ertu sannfærð um, að þú hafir
alltaf á réttu að standa, þegar ykkur
ber eitthvað á milli?
11. Ertu vön að vera sífellt að segja
honum, hve mikið þú hafir gert fyr-
ir hann?
12. Fyllir þú flokk þeirra kvenna,
sem nota hvert tækifæri, þegar þær
hittast, til að nöldra yfir körlunum
sínum?
EF ÞO SVARAR öllum 12 spurn-