Samtíðin - 01.06.1956, Blaðsíða 22

Samtíðin - 01.06.1956, Blaðsíða 22
18 SAMTÍÐIN menn andstæðingsins inni, setja þá í kví. Þetta eigum við ekkert orð um í íslenzku. Ein stutt skák skýrir orð- ið betur en málalengingar, og hér kemur hún. Bogoljuboff — Danielsson (tefld í Zoppot 1935). 1. eJj e6 2. dU d5 3. RcS Bbí Jj. e5 c5 5. a3 cxdU 6. axbU dxcS 7. DgU Hvítur býður upp á peðsfórn, sem svartur gat reynt að þiggja með 7. — cxb2 8. Bxb2 Db6. 7. ... g 6 8. Rf3 Dc7 9. Bd3 Rc6 10. 0—0 Rge7. 10. — Rxe5 11. Rxe5 Dxe5 12. Bb5f er að vísu glæfralegt, en líklega ■ þó skárra en það framhald, er svart- ur velur. 11. Hel Bd7 12. bxc3 0-0-0 13. b5 Rb8 1U. DbU Be8 15. Bg5 Hd7 16. Hxa7 Db6 17. Ha8 Dd8 18. RdU h6 19. Bf6 Hg8 20. b6. Svartur hefur flotið rakleitt að feigðarósi, og nú er svo komið, að hann á engan leik; hann hlýtur að gjalda afhroð. Lið hans er í kví, sem ókleift er að brjótast út úr. Lokastað- an er áreiðanlega einnar myndar virði: Dulrænai* smásögur BRYNJOLFUR JÓNSSON frá Minna-Núpi sagði betur sögur en nokkur annar maður, sem ég hef heyrt þreyta þá list. f návist hans gleymdu börn og unglingar stað og slund. Hann gat sagt sömu söguna aftur og aftur, eins og hún væri ný. Olli þvi virðing hans fyrir söguefn- inu, tök hans á frásagnarstílnum og meðfæddir hæfileikar. M.F.A. hefur sent frá sér allstórt rit: Dulrænar smásögur I—II eftir Brynjúlf, og hefur dr. Guðni Jóns- son séð um útgáfuna. Fyrri hluti rits- ins er endurprentun á sagnasafni, sem út kom á Bessastöðum 1907 og vitanlega er löngu liorfið af bóka- markaðinum. Seinni hluti ritsins hef- ur liins vegar ekki verið prentaður áður. Eðli þessara sagna felst í heiti bók- arinnar. Tegundarheiti sagnanna eru sem hér segir: Berdjeymi, feigðar- boðar, dáinna svipir, dulargáfur, dular-tilbrigði, huldufólk, dular-dýr (fyrri hluti), en í síðara lduta eru auk þess: einkennilegir, óráðnir draumar. 1 eftirmála kemst Br. J. svo að orði: „Hver veit, nema það verði vísinda- lega uppgötvað, að lieili manns hafi frá náttúrunnar hendi fengið mót- tökuáliald fyrir áhrif úr heimi leynd- ardómsins, en að þetta áliald hafi smám saman hætt að þroskast, af því næringin liafi meir og meir dreg- izt frá þvi til annarra áhalda heil- ans, sem menntunin lagði rækt við.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.