Samtíðin - 01.07.1958, Síða 11
SAMTÍÐIN
/
BUTTERICK nr. 8521 í stærðunum 12
20. — Skemmtileg;ur sumarkjóll úr
baðmull, krep, þunnu ullarefni eða rayon.
Snið fást lijá SÍS, Austurstræti og kaup-
félögunum.
að ganga með höfuðföt og vera í
sokkum að sumarlagi. En eins og all-
ir vita, gera margar stúlkur mikið
að því að ganga þá berhöfðaðar og
sokkalausar. Munið, að ekki er fal-
legt að vera sokkalaus, nema fótlegg-
ir séu fallega sólbrúnir.
'fc Þú verður að hjálpa henni
SYSTIR skrifar: Einkasystir mín
er 35 ára. Hún hefur alla tíð verið
heima hjá foreldrum okkar, og þeir
álíta orðið, að hún eigi alltaf að vera
þar til að hjálpa þeim í stóru og
smáu. Nú hefur liún kynnzt manni
um fertugt, og þau eru mjög ástfang-
in. En þá rísa foreldrar okkar upp
og vilja hvorki heyra manninn né
sjá. Systir mín má alls ekki koma
lieim með hann, hvað þá meira. Ég
er gift og hef leyft þeim að hafa
stefnumót Iieima hjá mér. En nú
liefur mamma komizt að því og ætlar
alveg af göflunum að ganga. Iivað
á ég til bragðs að taka, Freyja mín?
SVAR: Þú verður að hjálpa systur
þinni. Reyndu m. a. að telja foreldr-
um ykkar liughvarf. Það lítur út fyr-
ir, að móðir ykkar liafi ekki einungis
glatað skynseminni, heldur liafi til-
finningar hennar einnig komizt á
ringulreið, hvað þetta snertir. Fólk
má aldrei hugsa eingöngu um sjálft
sig og hætta að taka tillit til annarra.
Það hefnir sín, áður langt um líður.
Ég vona, að foreldrar ykkar átli sig á
þessu. — Þín Freyja.
önnumst allar myndatökur
bæði á stofu og í heimahúsum.
STUDIO
Laugavegi 30. Sími 19-8-49.