Samtíðin - 01.07.1958, Side 13
SAMTÍÐIN
9
steiktu tómötunum. Um leið og þetta
er borið fram, er smábrytjaðri stein-
selju og hvítlauk stráð yfir. Síðan er
hleypt upp á feitinni á pönnunni og
henni hellt yfir lifrina.
HRÆRT SKYR MEÐ ÁVÖXTUM.
— Skyrið er hrært með mjólk og
sykri eftir vild, en niðursoðnar perur
eða sveskjur síðan settar út í það.
Hjómahland er horið með sem útálát.
Gott er að setja vanillu-extrakt eða
vanilludropa út í það.
Draumaráðningar
• GIGT. Það er venjulega fyrir
góðri lieilsu, ef mann dreymir, að
hann þjáist af gigt; þó er það til, að
mönnum hætti þá við að fá kvef.
• MÖLFLUGA. Ef þig dreymir
þetta hvimleiða skorkvikindi, máttu
búast við, að óheiðarlegur samstarfs-
niaður þinn reyni að spilla fyrir þér.
• ÖSKUR. Ef mann dreymir, að
hann öskri éða veini, getur hann átt
von á tilboði, sem varhugavert er að
ganga að. Það boðar óhapp einlivers
nákomins vinar þíns, ef þig dreymir,
að þú heyrir annan mann veina.
• LYGI. Það veit á illt, ef þig
dreymir, að þú ljúgir sjálfum þér í
vil. Hins vegar getur þú vænzt stuðn-
ings vina þinna, ef þig dreymir, að
þú skrökvir þeim til hagshóta.
• FRÉTT. Það er eftirtektarvert,
að fregn í draumi veit á þveröfugt í
vöku.
Raflagnir. — Viðgerðir.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
RAFTÆKJAVINNUSTOFA
ÞORLÁKS JÓNSSONAR H.F.
Grettisaötu 6- — Sími 14184.
♦ þAÐ ER SAGT: ♦
að enginn maður eigi að láta taka
drauminn sinn frá sér.
♦
að geispi kunni að vera skortur á sið-
fágun, en hreinskilni er hann.
♦
að ýmsir menn séu ágætir, ef við
höfum ekkert saman við þá að
sælda.
♦
að hjónaband sé hezta vörn gegn
glæpum, geðveiki, fátækt og ó-
eðlilega skjótum dauða.
♦
að ekki sé hálf ánægja að gera góð-
verk nema aðrir viti um það.
MÁTTUG ORÐ
♦ HAMINGJA, sem miðast við
mann einan, er ekki til. — Thomas
Merton.
♦ VIÐ LIFUM aðeins einu sinni,
en ef við höldum vel á spilunum, er
það næsta nóg. — Joe E. Lewis.
♦ ÉG ELSKA stundvísi, enda þótt
hún hafi oft gert mig einmana. —
E. V. Lucas.
♦ MENN IIAFA tíma til alls, sem
þeir hafa áhuga fyrir. — Goéthe.
♦ EF ÞU vilt hafa yfir verulega
háleit orð, þá farðu með Faðirvorið.
— Napóleon mikli.
Sigurður Reynir Pétursson
hæstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14. Símar 22870 og 19478.