Samtíðin - 01.07.1958, Page 19

Samtíðin - 01.07.1958, Page 19
SAMTÍÐIN 15 inn kom Frank, bróðirinn með 300 dala niánaSárkaupið. „Frank, mig langar til að biðja þig að skreppa niður að liöfn og ná í farmskrána yfir vörurnar í „()ceanic“,“ sagði forstjórinn. Eftir klukkutíma kom Frank aftur með skrá, sem sýndi, að skipið var ekki einungis með 2.000 selskinn, heldur einnig með 500 bjóraskinn og 1.100 minkaskinn. Forstjórinn studdi á hnappinn í þriðja sinn, og inn kom Georg, 500 dala bróðirinn. Honum var sagt að gera nákvæmlega það sama og bræð- ur hans böfðu áður verið beðnir um. Þrjár klukkustundir liðu, og ekki kom Georg aftur. Það var búið að loka skrifstofunni, en forstjórinn og faðir bræðranna biðu samt eftir hon- um. Loksins kom hann og sagði: „Skipið er með 2.000 selskinn. Mér voru boðin þau á 5 dali hvert, og ég festi kaup á þeim með því skilyrði, að þér féílust á það. Ég er búinn að fá 7 dala tilboð í þau upp á væntan- lega sölu í St. Louis og hef lofað að síma þangað í fyrramálið og láta vita, hvað við gerum. I skipinu fann ég hka 500 bjóraskinn, sem við erum ekki vanir að verzla með, en af því að ég liafði tilboð í þess háttar skinn, heypti ég þau og er búinn að selja þau með 700 dala ágóða. Þarna voru hka 1.100 afbragðs minkaskinn, en af því að ég veit, að þér eigið alltaf uóg af minkaskinnum, lét ég þau alveg eiga sig.“ >,Þetta er prýðilegt, Georg,“ svar- aði forstjórinn. Síðan sneri hann sér uð föður piltsins og sagði: „Nú skilj- ið þér, hvernig á þessu stendur?“ z)„ö^ Ijóðskáld UTAN UR LÖNDUM berast fregn- ir af „reiðum, ungum mönnum“, sem senda frá sér skáldskap. Það er meira en sagt verður um tvö ung Ijóðskáld, er nýlega bafa sent frá sér fyrstu bækur sínar hjá Helgafelli. Indig- natio facit versum á sizt við um þá. Öðru skáldinu, Reykvikingnum .Mattbíasi Jóhannessen, hefur auðn- azt að komast andlega heill undan fargi 20 ára skólasetu, en hefur að henni lokinni gerzt lifandi mennta- maður, eins og blaðaviðtöl bans í Mbl. sýna, en þau eru sem stendur bezta blaðamennska sinnar tegundar á Islandi. Kvæðabók Mattbíasar, Borgin hló, er fágað verk af l’art pour l’art toga spunnin. Ort er á víxl stuðlað og lítt stuðlað, og leynir sér ekki samúð höfundar með síðara forminu, er hlotið hefur hina furðulegu nafn- gift atómkveðskapur hér á landi. Góð ljóð með frjálsu rími eru Hörpuslátt- ur og Blóm í júní. Stuðlaða kvæðið um Jóhann Sigurjónsson er ort af mikilli smekkvísi. Nj'stárlegasta yrk- isefnið er hins vegar Jón biskup Ger- reksson. Aldrei fór það svo, að lians yrði ekki einnig minnzt í ljóði! Matthías hefur í blaðamennsku sinni sameinað getu menntamannsins og skáldsins á óvenju frjóan bátt. Á þeim vettvangi bíða hans heillandi viðfangsefni. Engu skal hér um það spáð, hvort hann muni senda frá sér fleiri kvæðasöfn né hvort hann muni

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.