Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 15
SAMTÍÐIN 11 tl ur £A 'ncjiion, VÍÐIVÖLLUM: HUNDURINN HLUSTAR ★ SMÁBAGA VIÐ SVANA vorum búin að vera gift í nærri því 20 ár, og hjónaband okkar liafði reynzt sæmilega farsælt og snurðulitið. Ég vann alltaf utan heimilisins, en Svana sá um allt heima fyrir. Við vorum harnlaus. Þrátt fyrir margar ágætar ráðleggingar frá lækni, hafði okkur ekki tekizt að fjölga mannkyninu. Það höfðu orðið okkur báðum mikil vonbrigði, einlc- um í fyrstu, því að bæði höfðum við þráð að eignast börn. En nú vorum við löngu búin að sætta okkur við þetta mótlæti eins og hverja aðra óumbreytanlega ákvörðun örlag- anna, sem ekkert þ>'ddi að tala um. Hvorugt okkar bafði verið útsláttar- samt um dagana, en það var lika það eina, sem okkur var sameiginlegt; að öðru leyti vorum við næsta ólík. Svana var glæsileg kona, svo fög- ur, að margir töldu bana enn með fallegustu konum þorpsins, þó að hún væri komin á fimmtugsaldur. Mér þótti vænt um það. Sjálfur var ég væskilmenni, ófríð- ur og lítill fyrir mann að sjá. „Mein- leysisræfill, sem heldur dræpist en gera flugu mein“, heyrði ég fólkið segja og þótti bölvað, þótt vera kynni, að satt væri. En við hjónin höfðum alltaf verið hvort öðru trú um dagana. Að vísu hafði það stundum hvarflað að mér, þegar stelpurnar í fiskinum liöfðu verið að gantast við mig, að gaman væri nú að vita, hvort... En ég skammaðist mín óðara fyrir þá til- hugsun. Konan mín hyði ein heima og treysti mér í blindni. Ég var líka alltaf svo kjarklaus! Svana fékk fá tækifæri, þó að mig grunaði, að margur maðurinn . . . Ég var alveg liandviss um, að hún var mér dauðtrygg, enda liafði enginn erfingi fæðzt. Margir liöfðu furðað sig á því, að Svana skyldi liafa vilj- að mig, og ég raunar líka. En svona eru forlögin. í þeim hotnar enginn. Oft urðu hjónahöndin farsælust, ef hjónin voru sem ólíkust. Líklega hafði það verið mesta gæfan okkar Svönu í lifinu, live trú við vorum hvort öðru, þrátt fyrir harnlaust hjónaband. Aldrei kom það fyrir, að Svana ynni utan lieimilisins. Þess gerðist heldur engin þörf. Mér var það leilc- ur einn að vinna fyrir okkur háðum, enda hafði ég alltaf næga vinnu, jafnvel þótt lítið væri um atvinnu. „Það er varla hætt við, að karl- skrattinn fái ekki vinnu. Þeir geta alveg liaft hann i vasanum. Þó svo ég færi heim til konunnar hans og svæfi hjá henni, mundi hann hara skríða undir rúmið eins og fyrtinn hundur og híða þar, þangað til mað- ur væri búinn,“ sagði nágranni minn

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.