Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 Hann varði öllum eignum sínum til að ryðja lienni braut, og sjálf vann María sleitulaust til að sýna lionum og sanna, hvers virði liún væri. 1 14 stundir á dag æfði hún röddina og megraði sig jafnframt allt hvað af tók. Eftir að hún ávann sér söng- frægð, reyndist lienni hins vegar auð- velt að halda sér grannri. Hún er hörð við aðra, en hefur líka beitt sjálfa sig hörku. Það kost- ar mikið viljaþrek og sjálfsafneitun á flestum sviðum að ná þeim hátind- um frægðarinnar, sem hún er nú stödd á. Röddina hlaut hún í vöggu- gjöf. Það vissu foreldrar hennar vel. Móðir hennar var metnaðargjörn og lét dóttur sína þræla óspart. Það hef- ur María aldrei getað fyrirgefið henni. Hún vill hvorki sjá hana né hevra og hefur einnig lagt fæð á systur sína, sem hún álítur, að alltaf hafi verið tranað fram á sinn kostn- að. ^ Allt hefur leikið á reiðiskjálfi! MIKLAR SÖGUR ganga af hneyksl- unum þeim, sem Maria hefur valdið á helztu óperuleiksviðum heimsins. Óvild hennar til Renate Tebaldi, að- alkeppinauts hennar fyrir nokkrum árum, deikli itölsku þjóðinni í tvær andstæðar fylkingar, og allt lenti i uppnámi. Fyrir nokkrum mánuðum varð Rudolf Bing, forstjóri Metro- politan-óperunnar í New Yorlc, að gefast upp við að hagnýta sér krafta Maríu. Hún átti að syngja aðalhlut- verk hjá honum í byrjun þessa árs. Samningurinn var undirritaður, en á síðasta augnabliki hætti María Callas við allt saman, af því að hún fékk ekki að ákveða sjálf, hvað hún ætti að syngja. Enn styttra er síðan hún setti allt á annan endann í Scala óperunni i Mílanó. Það var í miðri örvinglunar-aríunni i „Sjóræningjan- um“ eftir Bellini, að hún óð lengst fram á sviðið og beindi söng sínum beint upp í stúkuna, þar sem hinn virðulegi, gráhærði forstjóri óper- unnar, signor Antonio Ghiringelli, sat. Allir, sem voru í leikhúsinu þetta kvöld, vissu, að söngkonan var að óvirða liann með aríunni. Daginn eft- ir sagði hún blaðamönnum, að það væri gott, að fólk hefði veitt því at- hygli. Þetta hefði hún ætlað sér. Hún kvaðst ekki ætla að syngja framar i La Scala, meðan Ghiringelli sæti þar í forstjórastóli. María Callas á sér viðhafnarmikið heimili við Via Buonarotti i Mílanó. Þar getur að líta fegurstu muni hvaðanæva úr veröldinni. Eldhús hennar er búið öllum ameriskum þægindum og rafmagnstækjum. Maður hennar segir, að hún sé snill- ingur við að búa ti'l mat, en því mið- ur hefur hún sjálf engan tíma til að annast eldamennskuna á heimilinu. Og nú heyrist, að þau hjónin séu skilin! ★ Námsstjóri hafði komið í skóla og flutt þar drepleiðinlegan fyrirlestur um ósköpin öll af vandamálum. Á eftir skyldi svarað fyrirspurnum. Fyrsta fyrirspumin úr hópi nemend- anna var: „Hvað skyldi klukkan nú eiginlega vera orðin?“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.