Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 17

Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 17
SAMTÍÐIN 13 Én allt í einu sprakk blaðran. Kvöld eitt, þegar ég kom með seinna móti heim frá vinnu (ég hafði verið að vinna með Gunnu í fiski uppi á íshúslofti), mætti ég nágranna min- um með hundinn. „Hver á þennan hund?“ kallaði ég æstur og horfði á mann og hund til skiptis. „Hvað er þetta, maður? Það er eins og þú ætlir að éta bæði mig og liund- inn með augunum! Veiztu ekki, að ég á hundinn?“ „Átt ÞÚ þennan hund?“ „Já, er nokkuð einkennilegt við það? Heldurðu kannski, að ég hafi stolið honum?“ „Það er ekki nema mánuður, síð- an ég sá hann fyrst.“ „Er það nokkuð undarlegt? Ég fékk hann að sunnan fyrir réttum mánuði." Ég var dæmdur í tveggja ára fang- elsi fyrir að misþyrma saklausum manni og drepa hundinn hans. Þegar ég kom út aftur, var Svana orðin móðir! En þá var ég sendur á Kviabryggj u til að vinna upp í með- lag með krakkanum hennar Gunnu í fiskinum! Gesturinn: „Hvenœr byrjuðuð þér að vinna?“ Þjónninn: „Fyrir rúmum klukku- tíma.“ „Þá hafið það ekki verið þér, sem ég Vantaði matinn hjá.“ ALLAR BÍLAVÖRUR verður hagkvæmast að kaupa hjá Kristni Guðnasyni Klapparstig 25, — Sími 12314. AUMINGJA MAÐURINN MAÐUR er nefndur Jean Paul Getty. Hann er sem stendur sagður auðugasti maður heimsins. Hann er olíukóngur og hefur kvænzt 5 sinn- um. Eiginkonurnar hafa allar yfir- gefið hann, af því að peningarnir drápu ást þeirra. Sú seinasta var ung leikkona, Louise Lynch að nafni.Hún hljóp frá milljónaranum, af því að hann hafði engan tíma til skipta sér af henni — var aldrei heima. Þessi mikli fjármálamaður er 64 ára gamall. Hann býr í París. Hann kvað oftast vera í skrifstofu sinni, einnig um belgar. Þegar hann kem- ur heim á kvöldin, er hann venju- lega of þreyttur til að geta talað við nokkurn mann. Hann gefur konum sínum allt, sem þær girnast: peninga, skartgripi, pelsa o. s. frv. Sjálfur hefur hann aldrei þorað að fljúga, en á samt heilt flugfélag. Hann á marga glæsilega veitinga- staði, en borðar venjulega í litlu veit- ingahúsi, sem er skammt frá skrif- stofu hans. Hann gefur sér mjög sjaldan tíma til að lyfta sér upp og sést aldrei í hinu svo nefnda sam- kvæmislífi. Nú langar þennan mikla auðmann til að kvænast í 6. sinn, og hann kvað vera að svipast um eftir konu, sem vill leggja það á sig að giftast auð- kýfingi. ÞÚSUNDIR kvenna og karla lesa kvennaþætti Samtíðarinnar með vaxandi athygli. — Sendið okkur áskriftarpöntun- ina neðst á bls. 32 strax í dag, og við póst- sendum yður blaðlð tafarlaust ásamt ein- um eldri árgangi í kaupbæti.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.