Samtíðin - 01.10.1959, Qupperneq 18
14
SAMTÍÐIN
★ AFREKIN HEFJA5T ★
EFTIR SEXTUGT
„EF ÞÉR ERUÐ 65 ára, skuluð
þér byrja að hlakka til. Ef til vill
verður það þá á næstu tíu árum, sem
frægðarferill yðar hefst fyrir alvöru.“
Þannig komst hinn gamli kanslari
Vestur-Þýzkalands, Konrad Aden-
auer að orði við 66 ára gamlan ung-
ling, sem kom til að óska honum til
hamingju, er hann varð 83 ára.
Ef við athugum aldur ýmsra
stjórnmálamanna, komumst við að
raun um, að þessi ummæli Adenau-
ers hafa við rök að styðjast. Meiri
hluta heimsins er stjórnað af mönn-
um, sem löngu eru fallnir fyrir hinu
kjánalega lága aldurstakmarki emb-
ættismanna, og myndu þeir skrimta
á eftirlaunum, ef þeir lytu venjulegu
lögináli aldursuppgjafarinnar.
• ADENAUER með 83 ár sín á
lierðum er enn mikill starfsmaður
og sá maður, sem Vestur-Þjóðverjar
hafa borið mest traust til á hinum
örðugu árum eftir heimsstyrjöldina.
• JÓHANNES PÁFI XXIII. er
af mörgum talinn hafa komið með
ferskan andblæ inn í páfaríkið í
Róm. Hann verður 78 ára í næsta
mánuði.
• GtJSTAF VI. ADOLF Svíakon-
ungur er fullur áhuga á fornleifa-
fræði og maður ágætlega að sér í
þeirri grein. Hann verður 77 ára 11.
nóvemher.
• THEODOR HEUSS, forseti
Samhandslýðveldis Vestur-Þ}rzka-
lands er 75 ára.
• Hinn frábærlega duglegi þjóð-
arleiðtogi Gyðinga í Israel, BEN-
GURION, er 74 ára.
• Hinn nýkjörni forseti Ira, de
VALERA er 71 árs.
• Forsætisráðherra Portúgals,
SALAZAR, er sjötugur.
• Foringi kínverskra þjóðernis-
sinna, CHIANG KAI-SHEK á For-
mósu er 72 ára.
• EISENHOWER Bandarikja-
forseti er 69 ára.
• CHARLES de GAULLE Frakk-
landsforseti er jafnaldri lians.
— En yngstur allra þessara
manna er KROSTÉV, valdamesti
maður Sovét-Rússlands. Hann er að-
eins 65 ára.
TIL FRÓÐLEIKS má geta þess, að
menn hafa á öllum tímum gegnt
æðstu.embættum fram á elliár. Skulu
hér nokkur dæmi nefnd um alda-
raðir:
Ágústus keisari (d. 14 árum e.
Krh.) varð 77 ára gamall. Valdimar
sigur Danakonungur (d. 1241) varð
71 árs. Bonifacius páfi VIII. (d. 1303)
varð 83 ára, og Aurangzeb stórmó-
gúll var 88 ára, er hann kvaddi allar
konur sínar árið 1707.
Með hættu viðurværi, aukinni
lækningalist og hollari lifnaðarhátt-
um hefur mannsævin lengzt að mikl-
um mun á síðustu timum. I samræmi
við það má nefna, að Mackenzie King
var forsætisráðherra Kanada til 74