Samtíðin - 01.10.1959, Page 20

Samtíðin - 01.10.1959, Page 20
16 SAMTlÐIN TIGRI5DYRIÐ KALLA ÞEIR HANA OPERUSÖNGKONAN IVIARÍA CALLA8 HÚN HALLAR sér aftur á bak á legubekknum, þessi ástríðuþrungna, fallega og viljasterka söngkona, María Callas, ómótstæðilegur per- sónuleiki og ein mesta sópransöng- kona, sem nokkurn tíma hefur heyrzt til í óperu. Blíðlega og stillilega segir hún: „Eg veit ósköp vel, að ég er kölluð tígrisdýrið. Mér þykir tigrisdýr fall- egt, og ég er víst kölluð þessu nafni vegna göngulags míns á leiksvið- inu ... “ Það er ekki vandalaust að að- greina, hvað er goðsögnin um þessa miklu söngkonu og livað er hún sjálf í raunveruleikanum, en eitt stendur þó óhaggað, að þá Maríu Callas, sem heimurinn þekkir í dag, hefur lágur og gildvaxinn gráhærður maður, Giovanni Battista Meneghini að nafni, skapað. Hann skapaði heims- fræga söngkonu og lieimskonu úr ó- gæfusamri stú'lku, sem var altekin minnimáttarkennd, af því að hún vó nærri þvi 200 pund! Hann horaði liana um 70 pund og skóp lienni nafn, og síðan giftist hún honum! Og í dag tekur María engu tilboði nema ráðgast fyrst um það við hann. Þau eru óaðskiljanleg, og hvar sem hún veður uppi og veldur hneyksli, er liann ávallt nærstaddur og full- vissar alla um, að hún sé mesta söng- lcona veraldarinnar. MARIA CALLAS Þetta veit Maria fullvel, og hún veit lika, að hún er persónugerving- ur skapofsans. „Ég er listakona, en alls enginn engill,“ segir hún. Að baki er óhemjustarf MARlA CALLAS er 34 ára gömul. Hún er tízkukona fram í fingurgóma. Það sanna 25 dýru loðkápurnar henn- ar, 250 kjólarnir, 150 pör af skóm og 300 liattar, allt frá kunnustu tízku- liúsum heimsins. Hún hitti Meneg- hini fyrir 10 árum. Hann hefur á- vallt haft næmt eyra fyrir fögrum söngröddum, en þegar hann kynnt- ist Maríu, heyrði hann strax, að hún hafði alveg óvenju glæsilega söng- rödd. Meneghini var, þegar hér var komið sögu, orðinn kunnur og vel efnaður „impresario“. En nú afsal- aði liann sér öllum störfum sínum til þess að geta helgað hinni ungu, grisku söngkonu óskipta krafta sína.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.