Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 24
20
SAMTÍÐIN
8. Reyna mun á réttlætistilfinningu
þína. Ýmisleg viðfangsefni bíða úrlausnar
í starfi þínu og heimilismálefnum. Festu
þarf til að koma þar öllu i gott horf.
9. Velta mun á ýmsu. Horfur eru á, að
þér muni bregðast stoð og styrkur, og er
því ekki líklegt, að þú hækkir í tign. Var-
astu málaferli i því sambandi.
10. Fyrri hluti ársins mun afla þér vina
og nýrra sambanda. Á seinni árshelmingi
er hættara við svikum og óheilindum.
11. Sitthvað verður til tafar. Gættu vel
heilsu þinnar fyrri hluta ársins. Miðhluti
ársins verður beztur til starfa, viðskipta
og fjáröflunar. Árslokin geta orðið við-
sjárverð.
12. Dugnaður þinn mun sigrast á örðug-
leikunum. Vertu varfærin(n) í bréfaskrift-
um. Á miðju ári 1960 verður bezt að ferð-
ast.
13. Ásta- og hjúskaparmálin verða dá-
lítið reikul. Hugsanlegt er, að óvinátta
myndist. Hömlur kunna að verða lagðar
á. Þörf er á að varast freistingar.
14. Ættingjar eða nágrannar munu
valda erfiðleikum, en góðar breytingar
eru samt í vændum. Árslokin munu færa
þér nokkrar áhyggjur, en einnig hagsæld.
15. Það mun reyna talsvert á þig. Störf
og viðskipti munu reynast örðug. Breyt-
ingar, sem eru þér óviðráðanlegar, munu
gerast.
16. Treystu ekki gæfunni. Vertu hag-
sýn(n) í fjármálum og gættu sparifjár
þins. Páskarnir 1960 verða góðir til ásta
og hjúskapar.
17. Þú munt verða að brjóta mótspymu
á bak aftur. Fjármálin munu reynast þér
örðug. Tekjur verða góðar, en útgjöld til-
finnanleg.
18. Fram að jólum mun þér yfirleitt vel
ganga, en með ársbyrjun 1960 verða ýms-
ar freistingar á vegi þínum. Gættu þess,
að þú verðir ekki látinn takast á hendur
þungbærar skuldbindingar.
19. Nokkur hætta er á því, að þú verðir
fyrir fjárhagstjóni eða viðskiptaörðug-
leikum. Vertu ekki ósanngjarn (gjöm) í
samskiptum þínum við aðra.
20. Það hillir undir vandamál, sem ekki
JJií tœhlpœrióýji
ara
ÍX ÚR DG KLUKKUR
Í? SKARTGRIPIR
Í? BDR-ÐSILFUR
Ít LISTMUNIR
& EINNIG: KVENTÍZKUVÖRUR
ávallt í fjölbreyttu úrvali hjá okkur.
Komelúus •Mónsson
Ura- og skartgripaverzlun
Skólavörðustíg 8. Sími 18588.
*
IJr- oy Listmunir
Austurstræti 17. Sími 19056. Reykjavík.