Samtíðin - 01.09.1960, Qupperneq 18

Samtíðin - 01.09.1960, Qupperneq 18
14 SAMTÍÐIN m 'ulntenni 21 Saráttutnaiurim, ORDE WINGATE herýcrihefi ÞAÐ BRANN alltaf eldur úr augum lians. Grannur, beinalier líkaminn og fjaðurmagnað göngulagið minntu á rán- dýr, sem læðist þreytulega, en hungrar þó stöðugt í næstu hráð. Hann virtist þrá lier- mennskuna með svipaðri ástríðu og á- hættuspilarinn spilahorðið, knúinn af ör- lagavaldi, sem annaðhvort beindi honum upp í hæðir mikilleikans eða steypti lion- um niður í ógæfudalinn. Alll ævistarf Wingates var að hans áliti hatrömm barátta við fjandsamleg öft. Hann varð aðeins 41 árs, og á þeirri stuttu ævi yfirskyggði frægð herforingj- anna Montgomerys, Wavels, Sjúkóvs, Pattons og Ronnnels afrek lians. En í hæfilegri fjarlægð gleymir sagan ekki jafn sérkennilegum baráttumanni. Og Winston Churchill kunni að meta hæfi- leika Wingates, því að hann minntist hans nýlátins í þingræðu með þessum orðum: „Hann var hugvitssnillingur og hefði getað orðið að miklum notum.“ Því er eðlilegt, að menn spyrji: Hvers vegna rann ævistarf lians út í sandinn? Metnaður ungs manns AFI WINGATES var trúboði meðal Gvðinga í Ungverjalandi, en faðir hans landsherforingi, er gerðist hreintrúar- maður og gekk í söfnuð Plymouth- bræðra. Hann fórnaði sér fyrir börnin sin sjö og trúboðsstarf sitt í Norður- og Mið- Afríku og Mið-Asíu og naut tilstyrks hraustrar og atorkusamrar konu sinnar. Orde Wingate var ungum haldið mjög að lexiulestri á virkum dögum og biblíu- leslri á helgum. í bernsku var hann á- þekkur öðrum drengjum, aðeins ófram- færnari en gerist. Hann lærði heila kafla úr biblíunni utan bókar og varð sjálf- kjörinn foringi svstkina sinna í drauma- ríki, sem þau skópu sér. Þessi foringja- tign mólaði hugarfar lians alla ævi. Kom það m. a. fram, er hann lijálpaði Eþíópíu- keisara með Gídeon-liðssveit sinni til að sigrast á ítölum. Wingate vildi, að Haile Selassie riði hvítum Iiesti á sigurför sinni inn í Addis Abeba. En þegar keisarinn vildi heldur aka í ítölskum bíl, xæið Win- gate fáknum sjálfur í. fararbroddi liðs sins. Skólabræður Wingates minnast hans sem fremur óásjálegs drengs, er alltaf fór í kirkju, þegar þeir fóru í knatt- spyrnu. Siðan lauk hann burtfararprófi frá Woohvich-herskólanum. Svo örðugt hafði hann átt með að þýðast heraga skól- ans, að hann var dæmdur til að ganga nakinn svipugöngin milli raða eldi’i nem- enda, er stóðu vopnaðir liandklæðum

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.