Samtíðin - 01.11.1962, Blaðsíða 12

Samtíðin - 01.11.1962, Blaðsíða 12
8 SAMTÍÐIN Nýjasta Parísargreiðslan. Spyr um mittismál o. fl. ÁSTA, 15 ára, sem er 162 cm á hæð, spyr, hvaða mál hún eigi að hafa um mitti, brjóst og mjaðmir. SVAR: Mittismál: 59,5 cm, mjaðmamál: 87 cm. Brjóstmál á að vera gildleiki úln- liðar margfaldað með 6. 'A' Of magamikil BILLA, 10 ára, kvartar um, að hún sé of magamikil og biður um ráð. SVAR: Hafðu engar áhyggjur af þessu. Þú hlýtur að grennast við 13—14 ára ald- urinn. Ef þú ert mjög matlystug, skaltu ncita þér um það, sem er fitandi. Lærðu að synda og iðkaðu leikfimi. Nuddaðu dag- lega á þér magann með bursta eða grófu handklæði. Kjörréttir mánaðarins Kálfa-kótelettur með belgbaunum og kartöflumauki. •— Veltið kótelettunum upp úr eggi og brauðmylsnu og brúnið þær í smjöri. Hellið örlitlu sjóðandi vatni á pönnuna og látið þær sjóða 10— 15 mín. Belgbaunirnar eru lagðar i bleyti. Suða er látin koma upp á þeim, en síðan eru þær látnar bíða undir loki, þar lil þær eru framreiddar. Þá er soðinu hellt af þeim og það geymt til hragðhætis, t. d. í súpu. Ilellið soðinu af kartöflunum, sem mega ckki vera ofsoðnar. Setjið smjör, sykur, salt og smábrytjuð hvítlauksrif út í pottinn, merjið allt þetta síðan sam- an með gaffli (karlöflurnar skulu vera með hýðinu). Bætið mjólk út í eftir yild. EFTIRMATUR: Melóna, stór eða lítil eftir þörfum, er skorin slétt i annan end- ann, svo að liún geti staðið í skál, en lok er skorið af henni í hinn endann. Síðan er ávöxturinn pældur upp úr henni með skeið, en hann síðan látinn vera kyrr i berkinum. Svo er lokið sett á og melón- an kæld, ef unnt er. Gott er að hafa í henni niðursoðin jarðarher, og skal þá hera hana inn loldausa, því að fallegt er að sjá rauð jarðarberin í melónunni- Sykrist eftir vild. Prjónamynztur Prjón 1. umf. r., 2. umf. r., 3. umf. 2. r., 2 óprj. eins og br. 4 umf, = 3. umf. endurt. hessar 4 umf. endurt.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.