Samtíðin - 01.11.1962, Síða 17
SAMTÍÐIN
13
á úrið sittj sá hún, að orðið var býsna
framorðið. Hún tiafði þá orð á því, að
sem betnr færi hefði barnið ekki látið
á sér bæra langa lengi.
„Ég verð að skreppa inn og sjá, hvort
hún er ekki ber. Ég ætla að fara ósköp
hægt, svo að hún vakni ekki,“ sagði frú
Welles og stóð upp.
Hún læddisl á tánum inn i svefnher-
bergið. Þá heyrði Doreen hana reka upp
°P- Hún liljóp þá inn í herbergið og kom
að frú Welles, þar sem hún stóð og
þrýsti barninu að hrjósti sér. Hún var
alveg örvita. Barnið var dáið.
Akaflega finnst mér skrítið —
telpa var send í sveit. Hún sagði við
bóndann, daginn eftir að liún kom á
bæinn:
„Ákaflega finnst mér skritið, að þessi
kýr skuli ekki vera með horn.“
Bóndinn svaraði: „Til þess geta nú
legið ýmsar ástæður, væna mín. Sumar
kýr eru alltaf kollóttar, aðrar hrjóta af
sér hornin, Jiegar þær eru að stangast
V1ð hinar kýrnar, og af sumum sagar
býralæknirinn hornin. En ástæðan fvrir
því, að þessi skepna er kollótt, er nú sú,
að þetta er ekki belja, heldur meri.“
Þegar springur
ÞAÐ ER aldrei þægilegt, þegar spring-
Ur á bíl, og menn af ýmsum þjóðum
bregðast misjafnlega við því.
Islendingur lætur strax gera við hjól-
barðann.
Bandaríkjamaður bölvar, fleygir síð-
9,1 hjólbarðanum og fær sér nýjan.
Englendingur fer með barðann á næstu
viðgerðarstöð og reynir síðan að gleyma
°bappinu yfir bjórglasi á næstu knæpu.
Þjóðverji flettir upp i bílahandbók og
athugar, hvað gera skuli, næst þegar
springur.
Spánverji biður Guð að hjálpa sér.
Itali hölvar ríkisstjórninni og konn
sinni.
Skandínavi skrifar klausu i biladálk
dagblaðs síns og kvartar undan lélegum
hjólbörðum.
Skoti hættir að aka bíl.
Rússi bölvar í hljóði.
Allt í lagi, ef —
LÖG KLÚBBSINS mæltu svo fyrir, að
þar skyldi aldrei sjást kvenmaður. En
á finnntugsafmæli hans var samþykkt
að brjóta þau og taka frúrnar með.
Þetta fór framhjá einum af meðlim-
unum, og kom hann því einn i afmælis-
hófið, enda ókvæntur. Honum brá í
brún, er hann sá stóran hóp af skraut-
húnu kvenfólki, og hann sagði við for-
manninn:
„Hvað á ég nú að gera?“
Formaðurinn anzaði: „Allt í lagi, góði,
að Iiafa með sér dömu, ef hún er bara
gift einhverjum öðrum í klúbbnum!“
Játningar
MAÐUR nokkur kvæntist. Skömmu
eftir brúðkaupið kom hann dag einn
mjög alvarlegnr til konu sinnar og sagði:
„Það er einn ljóðnr á ráði mínu, sem
ég hef ekki sagt þér frá, en ég álít, að
þú eigir að vita um. Ég er litblindur.“
Ivonan leit á mann sinn og sagði:
„Ég hef líka nokkuð á samvizkunni,
sem ég þarf að segja þér: Ég er svert-
ingi!“
Höfum í miklu úrvali:
Jakkaföt — Drengjafrakka — Fermingarföt.
Dömu- og Telpnabuxur.
Drengjafatastofan
Ingólfsstræti 6, — Sími 16238.