Samtíðin - 01.11.1962, Qupperneq 25
SAMTÍÐIN
21
Gömul stef í nýjum búningi
Þólt skáktækninni fari stöðugt fram
°g fleiri tefli nú vel en nokkrn sinni fyrr,
niá enn sjá góða menn stranda á gam-
alkunnum skerjum. Hin gömlu stef
skákarinnar um varnarlausan kóng
andspænis leiftursókn fáliðaðra vikinga
heyrast enn kveðin, nýir tímar skapa
ný form, en innihaldið er hið sama og
fyrr. Svo er um þær tvær smáskákir, er
hér fara á eftir. Sú fyrri er tefld á IBM
skákmóti í Hollandi nú í sumar, og þar
gerast hvítu riddararnir all harðleiknir
Vlð kóng svarts og drottningu, enda hafa
þeir góðan stuðning af hvítu drottning-
nnni. Síðari skákin er tefld austur í
Moskvu, og þar stingur gamaldags lieima-
skítsmát allt í einu upp kollinum og
kostar svarta herinn heilan mann.
Hennehei’ke Dunkelblum
(Holland) (Belgía)
1. cUi Rf6 2. c'i e6 3. Rf3 (15 k. Rc3 c5
5■ e3 Rc6 6. a3 cxd'i 7. exd'i Be7 8. Bcj5
(í*cA 9. Bxck 0-0 10. 0-0 b6 11. Dd3 Bb7
12- Hacll Hfe8 13. Hfel Rd7? lk. d5!
;h'5 15. Dc2! exd5 16. Rxd5 Bxg5 17.
/7-Te8f Dxe8 18. Rxg5, og svartur gafst
llPp> því að hann getur ekki leikið g6
Vegna Rf6f. Hins vegar liótar hvítur
niáti og það verður eigi hindrað nema
111 eð mannsfórn. Svartur er í ótrúlega
slaemri klípu eftir 14. d5 (14. -— Bxg5
f5. dxe6!).
Aronin Kantowícz
Moskva 1960
1. ch c5 2. Rf3 g6 3. c3 b6 k. dh Bb7
5. Bck d5
Eftir 4. — Bxe4 vinnur hvítur peðið afl-
ur með góðri stöðu: 5. Bxf7f og 6. Rg5f.
6. exd5 Bxcl5 7. Da'ij Bc6 8. Re5!
Nú hótar hvítur máti á f7, svo að
svartur má ekki vera að því að taka
drottninguna. Hann verður því að valda
biskupinn, en þá vinnur hvítur mann:
8. — Dc7 9. Rxc6 Rxc6 10. d5, eða 9.
— Dxc6 10. Bh5. Svartur gafst því upp.
Allt í lagi, lagsi
BÓNDI nokkur gekk eftir þjóðvegi.
Hann var með byssu um öxl og liund við
lilið sér. Allt í einu kom bill á fleygi-
ferð. Hundurinn asnaðist beint fyrir
hann og beið samstundis bana.
Bílstjórinn snarstöðvaði vagninn, rétti
bóndanum þúsund krónur og sagði:
„Gerið þér yður ánægðan með þessar
bætur?“
Bóndi ^takk á sig peningunum og
sagði: „Allt í lagi, lagsi. Ég ætlaði að
fara að skjóta hann hvort eð var.“
Ekki í sömu mynd
TVEIR MENN ræddu um endurholdg-
un og voru mjög ósammála.
„Heldurðu þá, að maður geti endur-
fæðzt í allra kvikinda líki?“ spurði sá
vantrúaði.
„Já.“
„Gæti ég þá t. d. orðið einhver hölv-
aður ormur á næsta tilverustigi?“
„Nei, menn fæðast ekki aftur i sömu
mynd.“
Hún: „Þú sagðir mér, að þú ætlaðir
að liitta tannlækninn þinn i gær og varst
svo bara í tennis!"
Hann: „Já, ég lék á móti homim."