Samtíðin - 01.12.1962, Side 22

Samtíðin - 01.12.1962, Side 22
14 SAMTÍÐIN €lt)b preAÍeíf svarar MtníijkuApumwqutn HOLLYWOOD-blaSiS Motion Picture átti nýlega eftirfarandi samtal viS Elvis Presley: „Hve margir Elvis-klúbbar eru nú starf- andi í heiminum?“ „Ég veit þaS ekki meS vissu, en mér er sagt, aS þeir séu um 3000.“ „Hverja af plötunum þínum meturðu mest?“ „Hiklaust „Nú eSa aldrei,“ því ég átti sjálfur hugmyndina aS þvi aS láta gera þessa sérstöku raddsetningu yfir „0 Sole Mio“ „Hve lengi heldurðu, að vinsældir þínar haldist?“ „ÞaS hef ég enga hugmynd um, en ég nýt vinsældanna og vona, aS þær haldist.“ „Saknarðu móður þinnar?“ „Ef ég ætti mér ósk, mundi ég óska þess aS fá aS tala viS mömmu. SíSan ég missti liana, dreymir mig hana oft. Hún er þá alltaf glöS og brosleit, og draum- arnir eru svo eSlilegir, aS ég rennsvitna, þegar ég vakna.“ „Hefurðu nokkurn tíma lent í lífs- háska?“ „Já, tvisvar. í fyrra skiptiS 1956. Þá lentum viS i bílslysi. Ég sat sofandi í framsætinu og meiddist ekkert, af því ég var alveg máttlaus. I hitt skiptiS lenti ég í minna háttar flugslysi. SíSan ferS- ast ég alltaf meS járnbrautarlestum!" „Hvort geðjast þér betur að máluðum eða ómáluðum stúlkum? Hvort viltu heldur, að þær séu í kjól eða buxum? Viltu hafa þær stuttklipptar eða með sítt hár?“ „ÞaS fer allt eftir stúlkunum sjálfum. Sumar þurfa aS mála sig, aSrar ekki. Ég kann nú hezt viS, aS stúlkur séu í kjól. En þaS fer líka eftir stúlkunum, hvort þeim fer vel aS vera meS sítt hár eSa stuttklipptum.“ „Finnst þér þú nokkurn tíma vera ein- mana?“ „Stundum, þegar ég er í margmenni, finnst mér ég skyndilega gripinn ein- manakennd, án þess aS ég geti gert mér grein fyrir, af hverju þaS stafar. Þetta gerist sjaldan fyrri hluta dags, en þegar á daginn líSur, verS ég oft gripinn þess- ari einmanakennd.“

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.